Thursday, April 29, 2004

Í morgun spiluðum við Holmes golf. Ekki gekk það nú vel eins og sjá má með að smella á golf hér til hægri, ég kenni helvítis rokinu um þetta.
Á morgun þarf ég að vinna og hlakka óneitanlega voðalega lítið til þess.
Keyptu um daginn þrenn pör af buxum fyrir $8 stk. Sá galli var á gjöf Njarðar að buxurnar voru of stuttar. Hef ég þessvegna hafist handa við það mikla ævintýri að lengja buxurnar. Við skulum bíða spennt og sjá hvernig það kemur út.


Wednesday, April 28, 2004

Á mánudaginn var vigtað til þess að fylgjast með framgangi megrunarkúrsins mikla. Kom í ljós að síðan síðasta mánudag hefur Haukur týnt 4,08 kg á meðan Jennifer missti 1,81 kg. Best er að skoða línuritið til að átta sig almennilega á þessu.
Í gær var ég að mála í vinnunni og var það skömminni skárra en venjulega jobbið mitt þar.
Bréfskrifum mínum við HDNET varðandi heimskan þul virðist lokið í bili því ekki hafa þeir enn svarað síðasta bréfi. Nú verð ég bara að sjá hvort þetta skáni eitthvað. Í kvöld er tildæmis USA v. Mexico og er spurning hvort maður glápi ekki eitthvað á það.

Ég hef orðið fyrir talsverðum vonbrigðum hve viðbrögðin voru slök við linkunum sem ég bætti inn á síðuna nýlega. Það er varla hughreystandi hvað fólk commentar hér lítið.


Sunday, April 25, 2004

Í gærkvöldi horfði ég á tvo íþróttaviðburði í sjónvarpinu. Fyrst var box á HBO þar sem Vitali réð nokkuð auðveldlega við feitan Sanders. Ég skil ekki hvernig þungavigtarmönum dettur í hug að vera í svona lélegu formi.
Eftir boxið var fótbolti þar sem Columbus Crew tapaði 2-0 fyrir LA Galaxy. Þessi leikur fór agalega í taugarnar á mér og fylgir sagan af því hér á eftir. Um miðjan síðari hálfleik var dæmd vítaspyrna á Crew sem Galaxy skoraði úr. Ekkert var í sjálfusér athugavert við það, nema hvað þulurinn varð alveg stór hneykslaður, hélt því fram að frekar skyldi dæma aukaspyrnu. Brotið var greinilega fyrir innan teig og var ekki deilt um það, heldur hélt hann því fram að sá sem brotið var á hafi ekki verið í færi til að skora. Vildi þessi þessvegna að dæmd væri aukaspyrna innan í teighorninu. Ekki nóg með það, held lét vitleysingurinn sér ekki segjast, heldur hélt áfram að röfla um hvað agalega dómarinn hefði misdæmt og í rauninni klúðrað leiknum með því að dæma vítaspyrnu, frekar en aukaspyrnu. Ekki er fótboltinn þróaðari en þetta hér í Bandaríkjunum, lýsendurnir kunna ekki reglurnar. Einhvernveginn fór þetta agalega í taugarnar á mér. Annars var leikurinn nokkuð góður og ég er ekki frá því að Bandaríski boltinn sé á einhverri uppleið.


Saturday, April 24, 2004

Í dag fórum við að versla. Fyrst fórum við á bókamarkað í Ann Arbor, og var það lélegasti bókamarkaður sem ég hef komist í, til dæmis var þar voðalega lítið að bókum. Næst fórum við í HomeGoods á Carpenter Road í Ann Arbor þar sem við keyptum nokkr myndaramma og skartgripaskrín sem Jennifer hefur lengi vantað. Loks fórum við í Sam´s Club hvar við keyptum kjúkling, þvottaefni, sladblöð, kalkúnaálegg, sykurlíki, gúrkur, tannbursta, hárnæringu, steik, marineraða svínalund, ólívuolíu, balsam edik, vatn, og ost fyrir $160. Svo fórum við heim og átum hádegisverð.
Tannlæknisferðin gekk þokkalega, ég lét fylla í tvær holur og kostaði þetta mig $310. Loks segir tannsi að ég sé með sex holur til viðbótar sem best sé að stoppa í. En við sjáum hvað setur.


Thursday, April 22, 2004

Ég er nýbúinn að bæta nokkrum áhugaverðum hlekkjum á síðuna. Skoðið smásögur eftir frænda ykkar á bewilderingstories.com. Heimasíða Meijer (þessi hlekkur hverfur 18. Maí, því þá hætti ég að vinna þar) og skólans míns eru þarna líka. Svo eru hlekkir á heimasíður Gumma og Thelmu, þar má tildæmis sjá nýlegar myndir, ekki gleyma að kvitta í gestabókina. Endilega kíkið á þetta.
Ég hef líka bætt á síðuna öðru fallandi línuriti, sem áhugasamir geta skoðað með því að smella á golf hér til hægri. Línurit þetta sýnir hve mörgum höggum yfir par ég spila níu holur á golfvellinum hérna nálægt. Besta skorið náðist í síðustu viku, 22.
Í dag þarf ég að fara til tannlæknis og láta okra á mér í sambandi við tvær fyllingar kannski ég segi söguna af því hérna seinna.


Wednesday, April 21, 2004

Á Mánudaginn var vigtað og kom í ljós að Íslandsferðin kostaði mig 2,18 kg og Jennifer 1,18 kg. Svo byrjaði prógrammið á Mánudaginn á fullum krafti. Gleymið ekki að skoða línuritið hér til hægri. Annað er varla að frétta. Ég hef ákveðið að síðasti vinnudagurinn minn verður 18. Maí og mun ég þá fara í 2 vikna frí áður en skólinn byrjar.
Ég er búinn að setja fleiri myndir á netið. Hægt er að smella á myndir hér til hægri ef vilji er til að skoða þær.


Thursday, April 15, 2004

Myndir 

Komnar eru myndir úr fermingunni hans Hartmanns á vefinn. Ef DSL er til staðar þá smeltu hér til að sjá skemmtilegri útgáfu, sem tekur um 5 mínútur að downloada.
Ef engin er DSL tendingin, þá má víst smella hér fyrir verkamannaútgáfuna.

Auk þess tilkynnist að búið er að fresta megruninni til sunnudags, á laugardaginn förum við nefninlega í afmælisveislu.


Í dag er frábært veður í Bandaríkjunum, gert enn betra með þeirri staðreind að ég er í fríi í dag. 18°C og hlý gola blæs úr einhverri átt. Við Holmes héldum uppá daginn með golfi, og gekk mjög vel og bætti ég besta skor mitt um ein 11 högg. Ég held að lélegu aðstæðurnar á æfingavellinum í korpúlfsstöðum hafi haft góðar afleiðingar. Ég er mikið að hugsa um að setja upp línurit fyrir golfið eins og ég er með fyrir vigtunina. Er að pæla í því hvernig best væri að hegða sér í því. Endilega látið frá ykkur uppástungur.
Talandi um vigtun, þá er búið að ákveða að megrunin byrjar uppá nýtt á laugardaginn. Þá verður líka vigtað í fyrsta skipti eftir komuna til landsins. Fleiri fréttir af því seinna.
Ég er líka að vinna í að koma myndunum á vefinn. Það ætti að gerast í dag eða á morgun, ef Guð lofar. Sennilega þó bara fermingarmyndir, því ekki má sóa öllu góðaveðrinu í tölvugramsl.
Á morgun á ég að mála í vinnunni og þessvegna þarf ég að njóta frísins á meðan það gefst, því annan frídag fæ ég svo ekki fyrr en á laugardaginn.


Monday, April 12, 2004

Jæja, þá erum við komin heim, sælla minninga. Ferðin til baka gekk vel fyrir sig. Við vorum eina nótt á ágætu hóteli í Boston og flugum svo áfram í gærmorgun. Það er verst að ég hafði með mér agalegt kvef af íslandi og er ég nú ómögulegur maður og þurfti til að mynda að fá mér frí í vinnunni. Mest spennadi verður svo á morgun þegar kemur í ljós hvað við þyngdumst mikið á Íslandi og geta allir verið nokkuð vissir að um háar upphæðir er að ræða. Síðan þarf að photoshoppa myndirnar sem voru teknar og eiga svo eftir að birtast hér. En nú þarf ég að hvíla mig svo ég komist einhverntíman yfir þetta kvef sem ég fékk.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org