Friday, August 27, 2004
Jæja, þá eru prófin loks búin og lítið að gera nema kannski að slappa af. Hér þarafleiðandi allt gott að frétta, eins og gengur.
Ásgrímur birti ansi skemmtilega sögu á bewilderingstories.com og er um að gera að kíkja á það. Hér hefur líka birst hlekkur á síðu Hólmfríðar, enda hefur hún lofað að standa sig betur en síðast. Annars verð ég að viðurkenna að íslenskan mín er orðin svo ryðguð að ég skyl mest lítið af því sem fram fer þar.
Nú er líka búið að uppfæra línuritið mitt góða af megrunartilraunum og getur fólk skoðað ef það vill.

Wednesday, August 11, 2004
Þúsundasti Gesturinn
Ég veit ekki hver var þúsundasti gesturinn. Veit bara að hann/hún var í Vestmannaeyjum, níunda Ágúst klukkan 1002 til 1003. Sá gestur var í tölvu sem keyrir Internet Explorer 6.0. Gesturinn fann síðuna með því að fara á google.com og leita þar að "stumpurinn"; hver ertu ó þú þúsundasti gestur?
Í gær, dag, og fyrradag var miklu heitara á Íslandi heldur en í Ann Arbor. Gott á ykkur, loksins er það ekki ég sem er að drepast úr hita. En hvað um það?
Nú fer að líða að prófum hér, þannig að þið skulið ekki láta ykkur bregða þó ég hverfi skyndilega af yfirborði jarðarinnar.
Það var engin saga eftir Ásgrím í nýjasta hefti bewilderingstories.com. Ertu nokkuð blokkaður drengur?

Tuesday, August 10, 2004
Enn um konuna sem gelti. ... Maðurinn hennar varð loks svo leiður á geltinu að hann fór með hana á Klepp. Þar var honum sagt, að geltið væri kannski ólæknandi. Konan vildi forðast ónotalegan veruleikann, og hélt innilega að hún væri hundur. Henni voru gefin lyf sem deyfðu hana, svo ekki var meira gelt. Sá ókostur var á lyfjagjöfinni, að hundkonan lá bara í sófanum allan daginn gerandi ekki neitt, gelti ekki einu sinni. Þá hringdi maðurinn í ruglaðann geðlækni, stelsjúkan kunningja, og dýralækni sem komu og drukku vín á meðan ruglaði geðlæknirinn spilaði á hörpu. Loks komst maðurinn að þeirri niðurstöðu að allavega var konan ánægð á meðan hún hélt að hún væri hundur. Þannig að hann tók hana af lyfjunum, og byrjaði hún þá loks að gelta aftur. Og þannig endaði myndin, konan hélt enn að hún væri hundur, en var allavega hamingjusöm, þ.e. hamingjusamari en hún var þegar hún hélt að hún væri hundur.
Það er nefninlega það.
Til gamans má geta að í gær leit hér inn þúsundasti lesandinn. Sá var úr Eyjum og fær heiðursverðlaun dagsins. Til hamingju!

Monday, August 09, 2004
Jú, það fór eins og mig grunaði. Ásgrímur leysti gátuna strax, en samt upphófust talsverðar umræður. Þá er næsta spurning, sem er ekki jafn heimspekileg, en ætti að höfða til stærri hóps. Er Ísland vondur staður fyrir grænmetisætur? Hér situr í sexsæta sjarlægð manneskja sem stundaði nám á Íslandi í eitt ár, mér skylst að hún hafi verið að stúdera kríur. Ég náttúrulega spurði hvernig henni hafi fundist vistin. Jú, ekki slæm var svarið, en vont var að finna eitthvað að éta. Jú, þessi manneskja er einmitt grænmetisæta. Auk þess sagði hún mér að Íslendingar væru ekki þolinmóðir gangvart fólki sem ekki kann Íslensku, en reynir samt að læra. Frekar vilja Íslendingar æfa sína eigin ensku. Ljótt er að heyra og þið ættuð að skammast ykkar.
Í dag byrjuðum við aftur á fyrsta stigi megrunarinnar. Ekki er það vegna þess að við erum að þyngjast, heldur höfum við tekið eftir því að við höfum verið í auknu mæli að éta ís og þessháttar. Sem er í sjálfu sér í lagi, svo lengi sem í góðu hófi er. Þar afleiðandi hefur hægt á þyndgarmissinum. Línuritið, sem ég þarf endilega að endurnýja hefur þessvegna flatst út. Síðan kúrinn hófst hefur Haukur lést úr 258 pundum í 212 pund. Held að 200 slétt sé best. Man ekki í augnablikinu hvað hinir hafa lést, en það er eitthvað minna.
Heiðurverðlaun dagsins fær Reynir, sem sendi mér nokkrar Íslenskar DVD myndir. Til hamingju með það!

Friday, August 06, 2004
Horfði á einkennilega bíómynd í gærkveldi. Sú hét Bark! og var um mann sem vaknaði við það að konan hans hélt að hún væri hundur. Þannig gelti kerlingin um nætur og hélt því áfram. Þessi mynd minnti mig á mann sem ég heyrði einhverntíman talað um, sem hélt að hann væri kjúklingur. En þá datt mér eitt í hug. Hvað ef maðurinn sem hélt að hann væri kjúklingur, var í rauninni kjúklingur? Eru það þá ekki hinir sem eru ruglaðir í ríminu.
Nú hætta sennilega margir að lesa, halda að hér röflað um gamla hugmynd sem allir eru þreyttir á, nefninlega að kannski eru vitleysingarnir þeir einu með fullu viti. En nei, hér er enn verið að tala um kannski enn eldri spurningu, nefninlega, hvað er kjúklingur, sem hefur birst hér áður. Þá er það spurning, er verandi kjúklingur eða ekki spurning um vitund, eða er það bara spurning um veru? Ef það er spurning um vitund, getur þá ekki vel verið að maðurinn sem heldur að hann sé kjúklingur, sé í rauninni kjúklingur? En ef það er spurning um veru, getur þá ekki staðist að maðurinn sem heldur að hann sé ekki kjúklingur sé í rauninni kjúklingur?
Ég á von á að af þessum vangaveltum spretti miklar umræður, sem hafa verið með minna móti hér uppá síðkastið.
Lélegasta vefsíða dagsins er vísir.is, en þar sá ég þessa setningu í morgun: "Hvaða bráðaofnæmi eru talið að A- og D-vítamíndropar sem kallaðir hafa verið af markað hafa valdið?"

Wednesday, August 04, 2004
Hvar er Ása?
Nú skal kynna nýjan dagskrárlið hér á Stumpinum. Sá heitir "lélegasta vefsíðan." Fyrsti vinningshafinn er salaskoli.is. Sú vefsíða er sérlega léleg vegna þess að þar birtast aldrei myndir af Ásgerði. Ásgerður heldur því samt fram að hún vinni við skólann. Það er einmitt það.
Í tengdum fréttum er það helst að letihaugarnir á Íslandi hafa enn ekki sent hingað myndir sem mér var lofað fyrir ári og öld. Skammastið ykkar!!
Þá er komið að nýjum dagskrárlið, sem er líka tengdur, hér sjáiði hvað heimurinn er þéttvofinn! Þar sem ég er svo agalega myndsveltur, þá leita ég stundum á netinu af myndum. Og á lélegustu vefsíðunni er mikið af myndum. Lokst tókst mér að koma auga á þessa umræddu Ásgerði. Þannig varð semsagt þessi dagskrárliður til, sem heitir "Hvar er Ása?"
Endilega kíkið á þessar myndir, og athugið hvort þið komið auga á Ásu! Nefna má að vegleg verðlaun eru ekki í boði.

Monday, August 02, 2004
Í dag á víst að vera helvíti heitt hérna í Bandaríkjunum, þessvegna er best að halda sig innandyra. Hef verið í mikilli vinnu undanfarna daga að bauka í ritgerð sem ég á að skila í dag, enn er verið að tala um hraðbankagjöldin og held ég að þetta hljóti að teljast útrætt mál.
Annars er voðalega lítið að gerast. Hér var í síðustu viku árleg listahátíð en þá fylkist hingað lið allstaðar af úr heiminum og rembist við að selja misléleg "listaverk" sem eiga það helst sameiginlegt að vera öll voðalega sviðuð. Þessi flóamarkaður endist í einhverja fimm daga og er alveg ótrúlegt hvað mikið af fólki mætir, bæði til að selja og kaupa, eða kannski að skoða. Mest gaman er kannski af góðgerðarhlutanum en þar er lið með bása sem vill koma einhverjum ákveðnum málefnum á framfæri. Þar var Kerry með bás, og sennilega fíflið líka. Þar má líka sjá hina ýmsu trúflokka, umhverfisverndarsamtök, og árlegan báse áhugamanna um nektarnýlendur. Undanfarin ár hefur liðið setið þarna á sundskýlunum einum fata, en í ár er ég labbaði framhjá þá var þar bara einhver allklædur vitleisingur. Já, ekki er öll vitleysan eins.
Ef einhvern þyrstir í menningu, endilega skoðið þá nýjustu söguna hans Ásgríms sem birtist í nýjustu útgáfu bewilderingstories.com