Friday, November 26, 2004

Downloadaði í morgun Firefox vafraranum. Þetta sýnist mér vera best vafrari sem ég hef séð. Setti upp hlekk hér til hægri.
Í gær var þakkargörð. Gekk mjög vel. Sennilega birtast myndir af því bráðum.


Saturday, November 20, 2004



Grasker Hauks er til vinstri. Grasker Jennifer er hægramegin


Friday, November 19, 2004

Jæja, þá er aðeins farið að lægjast um hérna, en það er aðallega fræga lognið á undan storminum, því nú koma bráðum próf. Það hefur verið mikið að gera undanfarið. Mér var falið að standa í málaferlum og átti ég að sækja mál ímyndaðs skjólstæðings sem fór í mál við háskóla vegna þess að kennarinn káfaði á henni. Þurfti ég að því tilefni að skrifa heljarinar mikla ritgerð. Svo kom ég fyrir dómara þar sem ég svaraði spurningum og flutti málið á móti öðrum nemanda sem varði háskólann. Þetta kom ágætlega út alltsaman, var allt voðalega formlegt, ég þurfti að vera í jakkafötum, og svo var púlt sem ég stóð við, og dómararnir tveir sátu á móti okkur og reyndu að snúa á mig. En þá er það að mestu búið nema hvað ég þarf að mæta einhverntíman yfir helgina til sáttafunda, ætla að reyna að ná 3.5 milljónum króna af skólanum.
Er að leita mér að sumarvinnu, en má víst ekki sækja um fyrr enn fyrtsa des. Einn prófessorinn bauð mér að lesa ritgerðir yfir sumarið og ég er að leita að einhverju til viðbótar. Fékk vísbendingu um firma í Ann Arbor sem ég sækji sennilega um. Svo er firma í Detroit sem lítur vel út. Annars ráða flest co. ekki fyrsta árs nema, þannig að sennilega enda ég í sjálboðavinnu hjá dómara eða einhverjum góðgerðarsamtökum. Langar helst þá að vinna við innflytjendamál, þyrfti þá sennilega að vera í Detroit. Mér skylst að hægt sé að fá styrki í svoleiðis.

Ásgerðir var í Minneapolis, í næsta tímabelti. Ekki nóg með það að þau komu ekki í heimsókn, hún og Árni, heldur nennti hún ekki einusinni að hringja í mig. Það er merkilegur andskoti. Við skulum nú sjá til hvort ég kíki nokkuð til hennar næst þegar ég er í Reykjavík!

Við erum búin að kaupa flestar jólagjafirnar enda ekki ráð nema í tíma sé tekið.

Einn umdeildasti dómari Bandaríkjana var í heimsókn í skólanum í fyrradag. Antonin Scalia, hæstaréttardómari. Hann hélt þar ræðu, svaraði spurningum, og kenndi stjórnarskrárlaga tíman sem ég er í. Ég sit í fremstu röð og hefði getað talað við hann ef ekki hefðu verið jakkaklæddir öryggisverðir á milli okkar. Ég segi kannski ekki að mér hafi þótt hann heimskur, en ég var ekkert sérlega hrifinn. Eiginlega var hann hálfgerður rugludallur. Sagði samt marga brandara, suma hverja fyndna.

Björn Virgill er kominn með ansi skemmtilega vefsíðu. Hana má skoða með að smella á hlekkinn hérna til hægri.

Þurfti ekki að fara í skólan í dag fyrr en klukkan eitt. Horfði þessvegna á Lazy Town í sjónvarpinu. Það kom mér bara nokkuð á óvart að þetta var ansi skemmtilegur þáttur og ég er ekki frá því að hann eigi eftir að verða nokkuð vinsæll. Magnús er ekki svo slæmur leikari. Holmes horfði á þetta með mér og var líka hrifinn.

Á fimmtudaginn er þakkargjörðarhátíðinn. Í því tilefni fór ég í verslun í dag og pantaði ferskan kalkún. Það var svosem ekki merkilegt.

Í síðasta mánuði var hrekkjavakan. Við skárum út grasker að amerískum sið. Reyni kannski að setja hér upp mynd á morgun af þeim listaverkum.



Thursday, November 04, 2004

This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org