Thursday, July 22, 2004

Tvær tilkynningar eru í lagi.
1) Skoðið nýjustu sögu eftir Ásgrím frænda Hartmannsson í nýjasta hefti bewilderingstories.com

2) Skoðið dálítið skemmtilegt myndband (3.7 MB) um forsetakosningarnar.

Annars er ég í skólanum og bíð þess að kennarinn mæti á svæðið. Ég var hér snemma því nú er listahátíð í Ann Arbor og mikið um að vera, þessvegna þarf að mæta snemma og forðast umferð og ná í stæði.
Í dag á víst að vera voðalega heitt og rakt veður. Mér skilst að hitin muni vera 91 gráður fahrenheit. Já, það er víst ekki lítið, en ég nenni varla að reikna það út nákvæmlega. Þegar rakinn er reiknaður með, þá virðist hitinn vera 100 gráður. Já, það er heitt og ömurlegt. Ég bíst þessvegna við að ég hangi í kjallaranum hérna í allan dag, þar sem loftkælingin er í lagi. Hérna er bókasafnið nefninlega neðanjarðar.

Annars er nauðsynlegt að kvarta dálítið yfir letihaugunum á Íslandi. Þannig var mér lofað myndum og allskonar sendingum þegar ég var síðast á Íslandi. Hér bólar samt ekki á neinu. Já, það er ljótt að vita, ekki satt?


Friday, July 16, 2004

Er svakalega upptekinn í dag og má ekki vera að því að skrifa mikið hérna. Er í miðjum ritgerðarskrifum og er nú að skirfa skemmtilega sögu um trukkabílstjóra sem lenda í því óláni að þurfa að nota hraðbanka, ekki gengur það betur en svo að bankinn rukkar þá um $ 6 fyrir að nota hraðbankan. Hvernig endar þessi saga? Ja, ekki veit ég það svo gjörla.
Ég hef tekið eftir því að frænkur mínar tvær, Hólmfríður og Guðlaug eru öðrum latari að blogga og hafa þær hér með vikufrest til að segja eitthvað, annars verða hlekkirnir á þeirra síðu snarlega fjarlægðir.
Í gær hitti ég vin minn tyrkneskan og við spiluðum pool í tvo klukkutíma, vann ég fyrstu tvo leikina auðveldlega, en tapaði svo næstu þremur illa.
Jæja, ekki dugir þetta hangs, þannig að ég sný mér að örðrum málum.


Thursday, July 08, 2004

Ekki er öll vitleysan eins segir amma og hefur rétt fyrir sér. Mér sýnist Íslenskir kjósendur nú loks orðnir kolvitlausir, allavega sumir. Ekki allsfyrir löngu var allt brjálað vegna þess að ekki mátti hafa fjölmiðlalög. Svo reiðir voru menn að þeir vildu ólmir kjósa um lögin svo þeir gætu felt þau úr gildi. Þá ákveður rískistjórnin, vegna þess að hún vill ekki falla í afleitri kosningu, að semja ný lög og fella gömlu óvinsælu lögin úr gildi. Aftur verður þá allt vitlaust, því nú vill sama liðið endilega kjósa um lögin. Það eina sem mögulega væri hægt að hafa uppúr slíkri kosningu er að lögin væru samþykkt, því þau verða hvort eð er ekki í gildi. Varla hefur liðið (gríðarlegur fjöldi, segir óháði vísir.is) skipt um skoðun. Heldur liggur hér annað við. Fólk ætti þessvegna að hætta að tala um þessi fjölmiðlalög og tala um það sem raunverulega liggur því á hjarta.
Þetta var leiðari dagsins.

Í gær las ég annars skemmtileg sakamál þar sem spurt var að því hvað er kjúklingur? Og rétturinn svaraði að bragði: kjúklingur er allt sem er ekki önd, gæs, eða kalkún.
Þannig var málið vaxið að menn pöntuðu kjúkling og fengu sendar hænur. Úr því urðu málaferli og komst rétturinn að því að hænur eru líka kjúklingar. Já, ekki er öll vitleysan eins!


Sunday, July 04, 2004

Í dag er þjóðhátíð í USA. Í tilefni dagsins skal minnast á að í nýjast hefti vefritsins bewilderingstories.com birtist skemmtileg saga eftir frænda minn Ásgrím.
Hef líka bætt hlekk á síðuna þar sem má sjá myndir af ævintýrum annars frænda!


Friday, July 02, 2004

Hér í bandaríkjunum er nóg að gera við að lesa dóma. Annars eru góðu fréttirnar kannski þær að þriðjungur kílós sem birtist í síðustu viku er aftur horfinn, og rúmlega það. Þarf að endurnýja línuritið góða við tækifæri. Annars er ég alltaf í skólanum, þar er ég núna, og finnst hvergi línurit þar. Um helgina er 17. Júní hér í bandaríkjunum og þessvegna er frí hér á mánudaginn. Sem er ágætt. Það er greinilegt, og eðlilegt að áhugi manna á Stumpinum hefur minkað eftir því sem lengra líður á milli færsla. Það er nátturulega ekki nema eðlilegt. En ég hef voðalega lítinn tíma til að garfa í þessu, tildæmis þarf ég að fara núna og klára að skrifa 10 bls. ritgerð um konu sem datt af hestbaki.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org