Thursday, March 25, 2004

Afsakið Hlé 

Þá er Haukur að fara í frí, og verður Stumpinum þessvegna lokað í rúmlega tvær vikur. Reglulegir lesendur eru beðnir að athuga svæðið aftur þá, og má til dæmis búast við fleiri myndum. Á íslandi verðum við svo á laugardaginn klukkan 640.
Bless á meðan.


Wednesday, March 24, 2004

Nú er nokkuð um liðið síðan heyrðist í mér hér síðast. Ég er þessvegna dauðhræddur um að fækkað hafi lesendum talsvert. Fyrst skal nefna vinsælasta dagskrárlið stumpsins, vigtun. Síðan síðasta þriðjudag léttist Haukur um 1,0 kg á meðan Jennifer þyngdist aftur á móti um 362 gr. Þó má ekki missa móðinn og verða heldur gerðar leiðréttingar á kúrnum til að bæta þetta upp. Ekki gleyma að kíkja á línuritið hér til hægri.

Annars hef ég verið mjög upptekinn síðan síðasta Fimmtudag og skal segja dálítið frá því hér að neðan. En það er einmitt ástæða þess að hér hefur ekkert birst síðan þá. Alls ekki er þar um leti að ræða eins og ormurinn hann Hartmann litli myndi örugglega stinga uppá.

Á fimmtudag, föstudag, og laugardag var ég í skólanum til þess að kynna mér stöðu mála. Skemmst er kannski frá því að segja að allt leit þar út eins og best verður á kosið. Annars er varla í frásögur færandi hvað gerðist þar. Ég sá þó annan öldungardeildarþingmanninn í Michigan þar sem hann hélt ræðu um stjórnmál, og var það ágætt.
Á sunnudaginn fórum við í bíó og sáum þar Eternal Sunshine of the spottless mind sem var mjög góð.
Í gær of fyrradag var ég svo að vinna. En í dag er ég í fríi og á fullu að undirbúa ferð til ISL. Þar verðum við svo á laugardaginn, eftir langt og strangt ferðalag.


Thursday, March 18, 2004

Hartmann litli hefur breytt síðunni sinni og getur hver sem er látið til sín heyra þar. Nóg er að senda Hartmanni tölvupóst og hann mun gera skyldum kleift að taka þátt í spjallinu. Smellið á zurp hér til hægri ef áhugi er fyrir slíku.

Í dag mun ég fara í kynnisferð í þennan ágæta skóla sem ég byrja í komandi sumar. Þar verð ég sennilega í allan dag, ef ég nenni og þar er boðið uppá kvöldmat og þessháttar. Trickið verður kannki að borða bara það sem má. Því ekki skal Haukur detta af megrunarkúrnum bara vegna þess að boðið er uppá ókeypis mat. Ó nei!! Svo verður þetta alltsaman endurtekið á morgun og hinn, og verð ég þá hálfútskrifaður hlýtur að vera.


Tuesday, March 16, 2004

Í dag var viktun og kom í ljós að hægst hefur all verulega á megruninni. Síðan síðast var vegið léttist Haukur um 1,8 kg á meðan Jennifer léttist um 0,73kg. Við látum ekki hér staðar numið. Í dag hóft líka stig 2 í megruninni, og má þá borða ýmislegt sem áður vað bannað. Í morgun mat vorum við með pönnukökur og berjashake, og í kvöld verður boðið uppá kjöthleif.
Ekki gleyma að skoða línuritið hér til hægri.


Monday, March 15, 2004

Í dag tók ég frí í vinnunni svo ég gæti skutlað Holmes út á flugvöll. Sá flýgur til Arizona hvar hann mun dvelja í viku á einhverjum golfvelli. Annars hefur ekki margt gerst síðan sást til mín síðast. Í gær fór ég í klippingu aftur langleið, verst var að fíflið gleymdi fyrirmælum síðan síðast og klippti hárið þessvegna of stutt. Eitt tækifæri enn er allt sem gefst því þetta er þónokkur leið að fara til þess eins að klippa sig. Hatturinn er semsagt í brúkun aftur og ég get aðeins vonað að þetta vaxi eitthvað áður en við mætum í fermingu Hartmanns nokkurs litla.
Á laugardagin fórum við svo í bíó og sáum þar píslargöngu Krists. Myndin var þokkaleg, og kannski þess virði að sjá, þó að sagan sé kunnuleg og raunar fátt sem kemur þar á óvart. Varla held ég samt að ég muni nenna að horfa á þessa mynd aftur, nema þá ef ég skyldi þjást af agalegu minnisleysi, sjö, níu, þrettán. Sama dag leigði ég líka Intolerable Cruelty eftir Cohen bræðurna og held að þetta sé sísta mynd þeirra til þessa, en var samt þokkaleg þó varla myndi ég endast yfir henni í annað sinn.
Í dag þarf ég að fylla út sviga. Hvern mars er haldið í bandaríkjunum körfuboltamót sem ég veit ekki hvað heitir. Þar keppa bestu háskólaliðin um Bandaríkjatitilin í háskólabolta. Þetta virkar eins og 32 liða úrslit gera almennt og dettur taplið í hverjum leik úr keppni. Hér tíðkast að spá fyrir um úrslit í hverjum leik og giska á hver stendur uppi sem sigurvegari. Spádómar þessir eru svo ritaðir á blað og ásamt einhverri peningaupphæð afhendar einhverjum strangheiðarlegum umsjónarmanni. Sigurvegarinn fær svo til baka allnokkurt fé. Þó þetta sé í sjálfusér ólöglegt þá er þetta agalega vinsælt hér um slóðir og tökum við allajafnan þátt. Hingað til hefur mér gengið mjög illa enda veit ég ekki neitt um þennan háskólabolta. Í ár ætla ég mér hinsvegar að rannsaka þetta vel og reyna að vera nærri toppnum. En við skulum sjá hvað setur, getur tölfræði gert betur en innsæji?


Thursday, March 11, 2004

Í dag hefur Haukur dundað sér við að láta gott af sér leiða. Til er project nokkurt sem kallast Gutenberg project sem birtir á internetinu bækur sem ekki eru verndaðar af höfundarrétti. Hlekk á þessa merkilegu síðu er að finna hér til hliðar.
Allavega, í dag hef ég verið að prófarkarlesa efni á þessa síðu í sjálfboðavinnu. Í dag las ég nokkrar síður í sérkennilegum skáldsögum, eina síðu í skýrslu Warren nefndarinnar um morðið á Kennedy, og eina síðu í Brittanicu alfræðiorðabók. Þetta er svona ágætt að dunda sér við á meðan maður hefur ekkert annað að gera.
Annars fór ég ekki varla úr húsi í allan dag, nema i mjög stuttan göngutúr hérna í næsta hús, en þar var lokað svo ég hélt mína leið aftur heim. Svo las ég blaðið í dag en gafst upp þegar ég rakst ekki á eigin nafn. Svo hef ég verið að dunda mér við að þvo þvotta og elda kvöldmat. Annað er það ekki held ég.


Wednesday, March 10, 2004

Mér hafa borist ótal ábendingar um það sem betur má fara í sambandi við stumpinn. Þó er mér skorinn nokkuð snöggur stakkur að því leiti að ég hef undir höndum hvorki ummál né fyrir eða eftirmyndir. Auk þess þykir víst ósiður mikill hér í bandaríkjunum að spyrja fólk um þyngd og hef ég þessvegna sjálfur ekki hugmynd um slíkar tölur, nema fyrir sjálfan mig. Þar sem ég er Íslendingur, eins og flestir muna, þá er mér alveg sama þó umheimurinn viti hve mikið ég veg. Þessvegna hef ég ákveðið að koma til móts við lesendur og hef komið þessum upplýsingum fyrir á línuriti hvar auðvelt er að fylgjast með vikulegri þyngd Hauks Guðmundssonar í pundum. Það er hægt að kynnast þessu nánar með því að smella á hlekkinn "línurit" hér til hliðar. Ritstjórn stumpsins þakkar Ásgrími þessa tillögu. Línuritið byrjar daginn sem kúrinn byrjaði og sýnir svo vikulegar breytingar.

Annars er hér fátt að frétta. Ég og gamli, sem héðan í frá verður kallaður Holmes, af ástæðum sem kannski verður sagt fra síðar, fórum í dag og hittum John mág minn. Með honum keyrðum við á dekkjaverkstæði og keyptum dekk. Síðan fórum við heim til hans og skiptum um dekk á 84 Crown Victoria. Síðan keyrðum við í húsasmiðjuna og keyptum agalegar poltaklippur. Síðan klipptum við handbramsuvírinn undan bílnum. Loks keyrðum við bílnum að veitingastað hvar sambýliskona John´s hún Jena vinnur. Þar borðuðum við hádegismat og drukkum vatn. Loks var haldið á bremsuverkstæði og sóttur þar Pontiac Grand Am 97. Þar skildu leiðir og við Holmes héldum til ömmu Rodriguez og ég lagaði internetið hennar á meðan Holmes fór og keypti einhverjar matvörur. Loks héldum við heim á leið.
Þegar heim var komið fékk ég póst þess efnis að lánið sem Bush óvinur minn vill láta mig fá er ekki nóg til að borga skólagjöldin í lögfræðinni. Lítur nú einna helst út fyrir að ég þurfi að leita á náðir einhverrja lánadrottna, og held ég sveim mér þá að það sé skárra að skulda þeim en helvítis skrattakollinum hinum. Annars á þetta allt eftir að koma í ljós.


Tuesday, March 09, 2004

Þá eru komnar niðurstöður úr westurlandsumdæmi. Á einni viku hefur Haukur léttst um 5,35 kíló og Jennifer hefur lést um 3,0 kíló. Ummál er ekki mælt í þessari rannsókn. Ekki hafa fengist tölur frá karlinum af því hann er ekki heima núna. Kannski koma þær á morgun. Svo verður vegið aftur að okkur eftir viku.


Monday, March 08, 2004

Á morgun er mikilvægur dagur. Þá þarf að vigta hér fjölskyldumeðlimi og reikna út hvort einhver hafi lést eitthvað við fyrstu vikuna í megrunarkúrnum mikla. Mig grunar að eitthvað hafi orðið um léttindi á þessu tímabili því hér á bæ hefur öllum leiðbeiningum verið fylgt nákvæmlega.
Mætti í vinnuna og rak mig strax á það hvað það er rosalega leiðinlegt að vinna í svona búð.


Sunday, March 07, 2004

Í gær skruppum við í bíó og sáum Starsky and Hutch. Þetta er alveg þokkaleg mynd sem hægt er að hafa gaman að. Að öðru leiti var gærdagurinn ansi rólegur. Við fórum í tvær búðir og keyptum sólgleraugu, því veðrið er búið að vera ágætt. Á föstudaginn var 18gráðu hiti en talsvert rok sem þó myndi ekki þykja frásagnarvert á Íslandi. Í Detroit er afturámóti öll almenningskerfi í slíku drasli að þúsundir manna urðu rafmagnslausar þegar rafmagnstaurar brotnuðu í golunni. Einnig fauk veggur af gömlu yfirgefnu verksmiðjuhúsnæði. Ég varð hissa yfir þessum fréttum því mér sýndist rokið ekki vera það slæmt, týpískur dagur í Vesturbænum. Það held ég nú.
Annað er ekki að frétta, nema hvað í gær rak ég mig á uppskrift sem er jafnvel betri en Kjúklingur en Papillotte. Var að hugsa um að birta uppskriftina hér en viðbrögðin voru ansi dauf við síðustu uppskriftabirtingu, þannig að ég þarf að hugsa málið. Ég óttast ekkert meira en að áhorfendunum fækki vegna leiðinda á uppskriftum. Stumpurinn er ætlaður til þess eins að auka vinsældir Hauks Guðmundssonar og fylgi. Það vita náttúrulega allir.


Thursday, March 04, 2004

Myndir 

Allir sem staðið hafa á stumpi vita að þar skal lögð áhersla á að fara að óskum áhorfenda. Í framhaldi af myndbirtingum hafa stumpinum borist talsvert margar ábendingar um það sem betur má fara. Nú er semsagt búið að laga myndasíðuna og hefur til dæmis verið komið á móts við þá þátttakendur sem nenna ekki að bíða. Ég vona að undirtektir verði góðar. Hægt er að skoða þessar nýju myndir með því að smella á hlekkinn hér til hægri eða bara hér


Kjúklingur en Papillotte 

Talsverð eftirspurn hefur verið eftir þessari uppskrift og hún fylgir þessvegna hér. Er fyrir fjóra.

4 beinlausar og skinnlausar kjúklingabringur (um eitt pund eða 454 gr)
klípa af salti
klípa af ferskmulnum svörtum pipar
2 graslauksstrá, skorin í smábita (chopped)
1 meðalstór gulrót sneiðuð á ská
1 lítið zuccini (kúrbítur) skorið fyrst til helminga eftir endilöngu og svo í sneiðar 3,8 cm á breidd.
[Ef kúrbítur er ekki til á Íslandi myndi ég nota einn grænan eða rauðaj belgpipar (paprika?) skorinn í strimla]
1 teskeið þurkað tarragon (ég hef notað annaðhvort Basil eða oregano með góðum árangri)
1/2 tsk rifinn appelsínuhúð (orange zest)

Hitið ofninn í 218 gráður celsius. Mælið fjóra 60 cm strimla af álpappír og brjótið hvern til helminga svo úr verði ferningur, 30 cm á hverrja hlið. Kryddið kjúklingabringur með smá salt og pipar. Setjið kjúklingabringu rétt fyrir neðan miðju á hverjum álferning.
Í litla skál blandið graslauk, gulrót, zuccini, tarragon, og appelsínuhúð. Setjið svo fjórðung af blöndunni ofan á hverrja kjúklingabringu.
Brjótið svo álpappírinn saman við miðju, yfir kjúklinginn of kremjið allar hliðar vel að bringunni. Munið að grænmetið skal snúa upp og vera ofan á kjúklingnum.
Þetta skal svo baka í 20 mínútur á ofnplötu.
Opnið svo pakkana með því að skera lítið X að ofan og rífa álpappírinn utan af.

Verði ykkur að góðu.



Wednesday, March 03, 2004

Í dag hef ég dundað mér við að setja myndir á heimasíðuna okkar. Þær má sjá með að smella á hlekkinn myndir hérna til hægri. Þolimæði skal með í för eftir þessari slóð og er raunar alveg vonlaust að eltast við þetta nema að vera með DSL eða breiðband.


Í gær hófst Suðurstrandar megrunarkúrin (South Beach) hérna á heimilinu. Ég hef tekið að mér alla ábyrgð fyrir þessari tilraun vegna þess að ég hef til þess allskonar tíma. Það er nefninlega ekki lítil áætlanagerð sem fer í svona megrunarkúr.
Í gær vaknaði ég fyrir allar aldir og bjó til eggjakökur úr eggjalíki í fernum. Það tókst ágætlega þó hálfgert óbragð sé af þessu eggjalíki, þá var þetta ætt. Ég fékk mér eggjaköku með osti á meðan Jennifer gæddi sér á eggjaköku með grænum og rauðum belgpipar (sem mig minnir að hafi verið kallað paprika heima á Skeljagrandanum). Síðan pakkaði ég hádegis og snakkpakka fyrir okkur Jennifer, karlinn er heima alla daga og sér að mestu leiti um sig sjálfur, en gerir sér grein fyrir grundvallarreglum. Í hádegissekk Jennifer var að finna oststöng sem hún borðaði klukkan hálf ellefu. Þar var líka hvað ég kalla Haukssalad, sem ég útbjó daginn áður (celery, saladblöð, tómatur, gúrka, grænn belgpipar, harðsoðið egg, og grilluð kjóklingabringa skorin í strimla) með saladinu var svo dressing sem ég útbjó sjálfur úr balsamic ediki, ólífu olíu, og ferskum jurtum. Saladið borðaði Jennifer svo um eittleitið. Mikilvægt er að drekka vatn, þegar maður er þyrstur. Þá má nefna það til gamans að Haukur Guðmundsson er hættur að drekka gos. Loks var í pokanum 15 hnetur sem Jennifer gæddi sér á um 3 leitið. Í sekki Hauks var að finna, ostastöng, grillaða kjúklingabringu með osti og 15 hnetur. Þegar heim var komið eldaði Haukur svo kvöldmat. Í gær var boðið uppá kjúklingabringur með zuccini, grænum belgpipar, og gulrótum. Öllu vafið inn í álpappír og bakað í 20 mínútur, meyrari kjúkling er vart hægt að finna. Í eftirrétt var svo boðið uppá kældann ricottaost með ósætu kakódufti, sykurlíki, og vanilludropum, sem var bara nokkuð gott.
Og þarmeð lauk fyrsta degi þessarar rótæku tilraunar.
Í dag borðaði Jennifer svo Quishie, sem er útbúið úr spínat, grænum og rauðum belgpipar, osti, og egglíki, sem er svo bakað í ofni. Ég útbjó svo eggjakögur fyrir mig og karlinn, með hverjum við borðuðum gervi bacon búið til úr einhverju sojadrasli en er nú bara helvíti gott á bragðið. Í hádeginu verðum við svo með grillaðar kjúklingabringur, því nú er hér ágætis veður, á meðan Jennifer gæðir sér á Haukssaladi. Auk þessa að hafa með sér 15 hnetur, útbjó ég fyrir jennifer skinnku vindlinga, sem er skinkusneið vafin utanum saladblöð og strimil af rauðum belgpipar.
Í kvöld verður svo boðið uppá grillaðar sirloinsteikur með grilluðum tómötum og ricottaostur aftur í eftirrétt.

Í gær fór ég líka að kenna skák í grunnskóla nokkrum. Þetta gekk ágætlega, einn ormurinn gekk upp að mér og sagði “þú lítur út eins og Frankenstein.” Ég spurði helvítið hvernig á því stæði en hann svaraði ekki. Annar krakkinn kallaði mig chessmaster, sem mér þótti fyndið. “Hey chessmaster, I found this” sagði hann og rétti mér hvítt peð. Annars er nokkuð gaman að þessu, ég sit við kennsluborð og kenni opnanir og mannganginn og svona ýmsar leikaðferðir sem mér sýnist sniðugar. Sumir krakkarnir eru virkilega duglegir við að læra, á meðan aðrir þykjast kunna allt og vilja helst monta sig. Ég máta yfirleitt þá montnu en geri jafntefli við hina. Ein stelpan var ágæt og þegar ég spurði hvort hún vildi tefla, svaraði hún að hún væri þarna komin til þess að læra. Jafntefli varð úr þeirri skák, enda skoðuðum við hvern leik mjög nákvæmlega.


Tuesday, March 02, 2004

Það telst varla saga til næsta bæjar, hvað þá til fjarlægs lands en eitthvað verður að segja til þess að halda áhuga dyggra lesenda stumpsins. Þannig munu mál hafa verið vaxin að ég fór til vinnu í gær. EIns og venjulega var dagurinn í Hagkaup ótrúlega lengi að líða og ég varði mestum tíma hans í að rannsaka verð á frostnum matvörum. Til þess að halda áhuga lesenda, og aðallega vegna þess að ég hef ekkert annað að gera, þá ætla ég að lýsa hér í nákvæmu máli, einum degi í lífi Hauks, en það er dagurinn í gær sem var að sumu leiti týpískur, en að öðruleiti ekki. Ég vaknaði klukkan 8 og fékk mér morgunkorn í morgunmat. Yfirleitt keyrum við Jennifer saman til vinnu, ég skila henni hvar hún vinnur, held svo til minnar vinnu of sækji hana á leiðinni heim. Í gær var undantekning frá þessari reglu því Jennifer þurfti að fara með vinnunni á verðlaunafhendingu fyrir auglýsingafólk þar sem þau áttu von á allskonar verðlaunum. Þennan dag fór ég því seinna af stað en venjulega, enda átti ekki vinna að hefjast fyrr en 9. Eftir morgunkornsátið, fór ég í bað eða réttara sagt sturtu og klæddi mig því næst í vinnuföt, sem í gær samanstóðu meðal annars af dökkbláum buxum, og ljósbláum stuttermabol. Eftir að ég burstaði tennurnar vandlega til að forðast framtíðar tannlæknagjöld, steig ég upp í hvítann Ó-2 og hélt til vinnu, á meðan ég hlustaði á Nýdanska gaula af MP3 diski sem Reynir sendi mér fyrir löngu, og á hann hrós skilið fyrir það. Ég var svo mættur í vinnuna 9:10 eða tíu mínútum of seint. Í minni deild skiptir slíkt ekki miklu máli og mæti ég oftast í vinnuna 15-20 mínútum of snemma, vegna þess að ég skila Jennifer yfirleitt af mér klukkan 8:30 og ekki tekur nema 10 mín að keyra frá state street til Ann Arbor-Saline Road.
Á föstudögum vinnum við bara tvö í okkar deild, ég og Rena þó fastir starfsmenn séu samtals 6. Ég hóf vinnudaginn á að klæða mig í agalega ljóta aquagræna skyrtu og stimpla mig inn. Þar næst fór ég inn á skrifstofuna til þess að ákveða hvað ég étti að gera. Rena var þar fyrir og stakk uppá að við myndum skanna frosnu matvörurnar. Ég tók ágætlega í það enda er ekki margt skárra að gera þarna í þessu jobbi. Hún sagði mér svo frá því að ég gæti fengið einn auka dag ef ég vildi og spurði hvort ég vildi vinna á sunnudögum aftur. Ég neitaði því og sagði slíkt ókristilegt með eindæmum, auk þess hefði ég nýlega skráð mig í leirkeranámskeið þar sem ég hefði staðið í þeirri trú að ég ætti ekki að vinna á sunnudögum. Því næst spurði hún hvort ég vildi vinna á fimmtudögum 1030-8. Ég sagðist þurfa að hugsa málið því vont værir fyrir mig að væflast svona seint heim frá vinnu, auk þess sem þá þyrfti tvo bíla til að flytja okkur til vinnu. Loks varð úr að ég myndi bæta við mig mánudögum 9-530 sem er langheppilegast fyrir mig. Næst fórum við að skanna frosnar matvörur.
Í minni deild er það eitt verkefni tímafrekast að rannsaka verðmerkingu. Slíkt á að gerast einusinni í mánuðu að hver vara í búðinni er skoðuð og gengið í skugga um að verðmerkinginn sé rétt miðað við skráningu í tölvukerfi. Til verksins höfum við litlar handtölvur sem lesa á strikamerkin og sýna hvað varan á að kosta. Ef varan er svo merkt rétt, verða eftirmálar engir. Ef ekki er rétt verð, þá skal skrá villuna á viðeigandi hátt og svo leiðrétta. Yfirleitt eru 2-10% af öllum vörum merkt vitlaust, eða ekki merkt. Þetta er, eins og lesandinn getur sér til, agalega leiðinlegt jobb. En við byrjuðum á þessu í frosnum og dunduðu, okkur við þetta þangað til 10:30 þegar kominn var tími til að fara í kaffi. Mín deild hefur þann kost umfram aðrar að við þurfum ekki að stimpla okkur út í kaffi og þessvegna er hægt að taka sinn tíma. Þó kaffitíminn eigi aðeins að vera 15 mínútur þá hefur oft sést til Hauks sitjandi í 30 eða 45 mínútur, hingað til hafa ekki orðið eftirmálar af þessu, en við skulum sjá hvað gerist í framtíðinni. Í skápnum mínum hef ég tvo hluti sem ég nota óspart í kaffitímanum, það er skákborð og bók. Í gær var enginn að vinna sem kann að tefla svo ég tók með mér bókina. Yfirleitt tefli ég við tyrkjann sem vinnur í minni deild en hann var í fríi. Síðan keypti ég mér beygluhorn með asiago osti og með því drakk ég banana og jarðaberjadrykk. Síðan sat ég og las í bókinni minni í 20 mínútur. Ég er núna að lesa ævisögu Maríu Antoinettu eftir sjálfsmorðingjann Stefán Zweig sem ég keypti fyrir um einu ári síðan í notaðri bókabúð (used bookstore). Zweig er ágætis ævisagnahöfundur og er bókin nokkuð áhugaverð þrátt fyrir að vera dálítið gamaldags, enda gefin út árið 1931 að ég held.
Eftir kaffi fór ég aftur að skanna, og dundaði mér við það þangað til klukkan var eitt. Lítið kom uppá í millitíðinni fyrir utan að ein kerling kvartaði mikið yfir því að allir frosnu bökubotnarnir voru brotnir. Ég þurfti þá að fara inní frysti og athuga hvort til væru fleiri botnar, þá fann ég enga og kerling hafði sig á brott. Klukkan eitt fór ég í hádegismat. Þá þarf að stimpla sig út enda fær maður ekki borgað í hádeginu. Hádegismatur á að vara hálftíma en ég tek einatt 45 mínútur aðalega til þess að jafna út kortérið sem ég kem of snemma. Ég tók bókina góðu með aftur og keypti mér hamborgara franskar og sprite, því ég var svangur. Einhver ný kerling var að manna grillið og hamborgarinn var brenndur í gegn með þeim afleiðingum að ég þurfti að skila honum og krefjast annars. Vegna þessara mistaka þurfti ég að vera í mat 10 mínútum of lengi.
Síðan var haldið áfram að skanna frosið drasl þangað til klukkan var tvö. Þá fór Rena heim og ég var einn eftir í frosnu. Klukkan 330 var aftur haldið í kaffi og eitthvað lesið um Maríu Antoinette. Nokkru síðar hringdi einhver vitleysingur í mig og sagði að prentarinn á skrifstofunni væri jammaður. Þá þurfti ég að fara og af jamma hann. Síðan hringdi tyrkinn í mig og sagði mér að hann hefði ekki tíma til að spila pool eftir vinnu. Loks fór ég aftur að skanna. Klukkan 430 prentaði ég verðkönnunar skýrslu og dreifði henni í allar deildir. Þess næst kláraði ég helminginn af frosna draslinu og læddist svo heim á leið, óséður.

Venjulega keyri ég framhjá vinnustað Jennifer á State Street, en í gær var hún á verðlaunaafhendingu svo ég slepti því og keyrði sem leið lá, eftir Pontiac Trail, alla leið til South Lyon. Þar stoppaði ég á samloku og rótabjór sjoppu og fékk mér þokkalega roastbeef samloku með swissneskum osti og rótarbjór með einni kúlu af vanilluís samanvið. Síðan fór ég heim. Þar dundaði ég mér við að taka dálítið til í svefnherberginu, enda við í miðjum kliðum við að breyta þar til og var mikið verk ógert. Síðan leiddist mér það og hprfði á Dennis Miller og fótbolta í sjónvarpinu þangað til Jennifer kom heim um klukkan 1130. Þá var kominn tími til svefns og var dagurinn búinn.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org