Monday, May 31, 2004
Var að lesa haust útgáfu 2003 Wilson Quarterly, ársfjórðungslegt tímarit fyrir súdóintelligensíuna hér í Bandaríkjunum. Þetta blað var sent mér af ættingjum vegna þess að þar er að finna okkrar misathyglisverðar geinar um stjórnamálafræði. Þar er líka tilkynnt un grein sem birtist í blaðinu Education Next sumarið 2003. Þar sem nokkrir lesendur stumpsins hafa mikinn áhuga á menntamálum þá fylgja hér stuttir kaflar úr þessari grein:
"The researchers studied 18 countries, taking advantage of the natural variations in class size between grades to determine whether smaller was better....In only two of the 18 countries-Greece and Iceland - did smaller classes seem to improve student performance....Students scored just over two points higher for every one student fewer in their class." Why? The difference may be in the quality of the teachers, West and Woessmann speculate. The two countries rank relatively low in per pupil spending and teacher salaries-and, presumably, in teacher quality. Apparently, better teachers can handle bigger classes. "Smaller classes appear to be beneficial," the authors conelude, "only in countries where average teacher quality is low."
Þar hafiði það, Íslenskir kennarar eru semsagt svona lélegir! Ég er nú ekki viss um að þessi rannsókna standist nákvæma skoðun. Við fyrstu sýn virðist sem könnunin vanmet laun íslenskra kennara. Annars geta áhugasamir skoðað upphaflegu greininga með því að smella hérna.

Friday, May 28, 2004
Fór á vef Hagstofu Íslands áðan í þeim erindagjörðum að skrá sjálfan mig sem búsettann erlendis. Í leiðinni athugaði hverjir í ættinni bera sjaldgjæfustu eiginnöfnin. Engum kemur náttúrulega á óvart að sigurvegarinn er Björn Virgill sem er eini Íslendingurinn sem heitir Virgill. Lilja Pálína mun svo eina manneskjan sem heitir það. Í þriðja sæti eru Hartmann Kristinn, Ásgerður Helga, og Ágúst Viðar en aðeins eru tveir Íslendingar sem bera þau nöfn saman. Geta má þess að á þjóðskrá eru 4 sem bera einnefnið Jack. Í fimmta sæti eru þau jöfn, Hjalti Snær (ég man ekki millinafn Hönnu systur hans en minnir að það nafn sé ekki algengt) og Thelma líf, því ekki bera nema 7 þau tvínefni. Og svo mætti raunar lengi telja, en nenni ég því ekki lengur.
Komst að því líka að mig vantar umboðsmann með lögheimil á Íslandi. Hefur einhver áhuga á þeirri heiðursstöðu? Þ.e. Umboðsmaður Hauks Guðmundssonar á Íslandi.
Í kvöld held ég að Detroit Pistons séu að keppa í undanúrslitum NBA deildarinnar og getur vel verið að maður fylgist eitthvað með því annars er ég ekki viss. Er að reyna að klára Njálssögu fyrir morgundaginn því ég vil lesa eitthvað annað á morgun.

Thursday, May 27, 2004
Rakst áðan á blog um Ólafsfjarðarbæ sem mér sýnist að einhver að nafni Björn Valur standi að. Hægt er að finna þessa síðu á www.bvg.is. Þar er birt gömul ljósmynd og geta þess sumir að þar sé kominn afkomandi Ásgríms nokkurs Hartmannssonar. Endilega kíkið á þetta ef einhver áhugi er fyrir slíku.
Wednesday, May 26, 2004
Kláraði í gær að lesa ævisögu Maríu Antoinette Frakkadrottningu, eftir Stefán Zweig. Þessi bók var ágæt þó dálítið úrelt enda skrifuð 1932. Spurning dagsins: Hvað hét böðull Maríu?
Í dag ætla ég að skreppa til Ann Arbor og athuga hvort ég get ekki keypt WIndows XP Professional fyrir $15 svo ég geti notað laptopinn til að tengjast háskólanetinu. Ég ætla svo að hitta Jennifer í hádeginu og ætli við förum ekki á Good Time Charlie´s í mat. En fyrst þarf ég að skreppa út í klúbbhús og lyfta þar lóðum í einhvern tíma. En spennandi það.

Tuesday, May 25, 2004
Fjölmörg svör bárust við spurningu dagsins og voru þau öll vitlaus. Rétt svar er auðvitað Sinclair Lewis. Í gærkvöldi horfðum við á æsispennandi leik í NBA þar sem Detroit klaufskaðist til sigurs þrátt fyrir afleita sóknartilburði, svo sterk var vörnin.
Í morgun fór ég og synti 1 km sem var alveg nóg.
Hér hefur verið mikið um flóð og myndir teknar svona klukkutíma fyrir norðan okkur sýna hús og bíla á kafi í pullum eða ám sem hafa flætt yfir sína bakka. Sérstaklega er gaman að taka eftir því að þeir sem eiga jeppa hér halda að þeir séu algerlega ónæmir fyrir öllu sem á vegi þeirra verður og æða í polla sem oftar en ekki eru dýpri en jepparnir eru háir. Þá sitja fíflin uppi á þaki og vona að komi þar að dráttarbílar og dragi þá uppúr pollinum. Mér sýnist að þeir sem aka um á Hummer eða Ford Expedition sé hættast við að látast svo blekkjast um hæð bílsins og dýpt vatnsins. Annars á víst að rigna meira í dag og er frem grátt yfir að líta. Gaman verður að fylgjast með hvað gerist næst, svo lengi sem ekki flæðir inní kjallarann hérna hjá okkur.

Monday, May 24, 2004
Í dag var vigtað og léttumst við Jennifer bæði um 0,9 kg síðan fyrir viku. Ekki gleyma að skoða línuritið.
Fórum í bíó á laugardaginn og sáum Troy þar. Ekki mæli ég með þessari mynd sérstaklega. Í gær vorum við svo bara heima og slöppuðum af nema hvað við skruppum út í búð og keyptum mat fyrir vikuna.
Annars var ég mikið að lesa um helgina og kláraði loksins agalega langa bók um fyrsta bandaríska nóbelsverðlaunahafann í bókmenntum. Spurning dagsins: Hvað hét hann?
Annars er ég með nokkuð háan stafla af bókum sem ég vil gjarnan klára áður en skólinn byrjar og held ég að ég vindi mer í það. Kannski maður taki sér pásu frá lestrinumn á eftir og hlusti á eldhúsdagsumræður. Annars hef ég ekki verið mjög heppinn með svona internetútvarp nýlega, skemmst er þess að minnast að KR tapaði 3-1 einmitt í slíkri útsendingu í síðustu viku. En við sjáum til.

Friday, May 21, 2004
Nú taka glöggir lesendur Stumpsins eftir því að horfinn er linkurinn á heimasíðuna hans Hartmanns. Harry litli var svo latur að skrifa. Líka er horfin linkurinn á heimasíðu Meijer, því þar vinn ég ekki lengur, sælla minninga. Bæst hefur við linkur á síðu Hólmfríðar Hartmannsdóttur sem ég komst yfir fyrir algera rælni. Agalegt er að lesa orðbragðið á ungviðinu í dag!
Í gær fór ég eins og kom hér fram á byggðarsafnið hérna. Þar var hinsvegar verið að byggja sólpall svo safnið var lokað. Það lítur út fyrir að við spilum golf á eftir, því hætt er að rigna, en þó lítur út fyrir að meira regn liggji í loftinu. Í nótt voru víst agalegar rigningar og mynduðust 1.5 metra djúpir pollar í útborgum Detroit. Hérna lítur allt hinsvegar vel út, og er rigningin bara góð fyrir plönturnar.
Loks óskar Stumpurinn verkalýðsforingjanum til hamingju með glæsilega kosningu!

Thursday, May 20, 2004
Þá er ég kominn frá tannlækninum aftur og eru þetta þá um 70,000 í útgjöld. Allavega hingað til. Ætla að skreppa á eftir á byggðarsafnið hérna í South Lyon. Er að hugsa um að bjóða mig fram í sagnfræðinefnd borgarráðs. Það er jobb í sjálfboðavinnu, en væri kannski gaman að sjá hvernig hlutirnir fara þar fram. Annars er dálítið gaman að bera saman bæjarbáknið hérna miðaðvið í smábæjum á Íslandi. Hér er borgarstjórinn með um 180,000 kr í árslaun. Hver ætli séu bæjarstjóralaun á Ólafsfirði, svo dæmi séu tekin. Til gamans má nefna að borgarstjórinn í Ann Arbor (sem er helmingi stærri borg en Reykjavík) fékk nýlega kauphækkun og er núna með umþaðbil 145,000 kr á mánuði, fyrir skatta. Já, hér er lítið að hafa uppúr bæjarpólitík.
Í dag er ansi grátt og rigningarlegt en enn hangir hann þurr. Við Holmes ætluðum að skreppa til Brighton á morgun að spila golf, en við sjáum nú til með það.

Wednesday, May 19, 2004
Hér hefur verið yfir því kvartað að ég skrifi hér lítið. Það er rétt, þó kannski fari eftir því við hvað er miðað. En fyrir skorti á skrifum liggja góðar ástæður eins og hér verður nú rakið.
Á fimmtudaginn skrifaði hér síðast, en síðan hef ég verið ansi upptekinn. Á föstudaginn var ég í vinnu allan daginn. Laugardaginn fórum við svo í heimsók til tengdarmömmu. Þar lenti Jennifer í landbúnaðarstörfum á meðan ég spilaði golf. Golfið gekk mjög vel og var skorið 63, 61, 58 fyrir hverjar níu holur, sem er mjög gott fyrir mig, þó kannski ekki fyrir aðra. Við komum svo heim seint á sunnudaginn. Á mánudaginn var ég svo í vinnu allan daginn. Þriðjudagur var minn síðasti vinnudagur. Ég dundaði mér í vinnunni til hádegis, keypti svo nokkrar pizzur handa fólkinu í minni deild og fór svo klukkan hálf tvö að spila pool og skák með Tyrkneskum kunningja mínum. Loks sótti ég Jennifer í vinnuna og við fórum heim. Í matinn grillaði ég nautalundir sem voru frábærar. Þannig hafði ég ekki tíma til að sinna blogginu.
Á mánudaginn var vigtað. Haukur léttist um 1,27 kg á meðan Jennifer léttist hvorki né þyngdist. Ekki gleyma að skoða línuritið hér til hægri.
Annars er fínt að vera loks orðinn atvinnulaus og verð ég það þar til skólinn byrjar fyrsta júní.
Er í augnablikinu er ég að hlusta á umræður á alþingi um fjölmiðlafrumvarpið. Skelfing þykir mér þetta mál öfugsnúið og skrýtið.

Thursday, May 13, 2004
Mér sýnist að allt sé að verða vitlaust á Íslandi í sambandi við fjölmiðlafrumvarpið svokallaða. Annars held ég að þetta frumvarp sé gallagripur og ætti ríkið ekki að takmarka útvörp annara á meðan það stendur sjálft í slíkum rekstri. Samt er gaman að því hve samfylkingin hleypur fljótt til stuðnings Norðurljósa. Líka er það óneitanlega fyndið að frjálslyndi flokkurinn kvartar yfir því að fótunum sé kippt undan þessu fyrirtæki á meðan þeir stefna að því að sökkva allri útgerð á landinu. Ekki meira um það.
Í fyrradag hóf ég æfingar. Hljóp ég á hlaupabretti í 20 mínútur þann dag. Ekki gekk það betur en svo að ég tognaði í baki og gat ig varla hreyft. Vegna þessara meiðsla gat ég ekki æft neitt í gær. Í dag var bakið betra og gat ég þessvegna farið hérna út í klúbbhús og lift lóðum. Eftir liftingarnar fór ég synti ég svo í 20 mínútur eða svo. Gekk það vel og hingað til er ekki fundið fyrir neinum bakverkjum.
Er að hugsa um að fara í klippingu á eftir. Klippikerlingin frá því síðast er hætt að vinna og get ég ekki farið þangað í bili. Vona að einhverstaðar hér í nágrenni er vonandi þolanlegur hárskeri. En við sjáum nú til um það.

Tuesday, May 11, 2004
Í gær var vegið að okkur og kom í ljós að Haukur léttist um 0,91 kg á meðan Jennifer léttist um 4,08 kg sem er 1,5 kg meira en hún þyngdist um í síðustu viku. Ekki gleyma að skoða línuritið.
Á sunnudaginn fórum við til kirkju með ömmu Rodriguez og Holmes í tilefni mæðradagsins. Heitir þessi kirkja United Methodist og skal hér lýst snögglega sem fyrir augu bar að þessu tilefni. Við mættum klukkan kortér í 11 en messan átti að byrja klukkan á slaginu. Kirkja þessi var heilmikið mannvikri þó ekki kirkjulegt í útliti. Helmingurinn leit út eins og skrifstofubygging, lá lág í loftinu og var skreidd ansi mörgum litlum gluggum þökktum rimlagardínum. Við endann á skrifstofunum hækkaði þakið talsvert þó ekki væri þar að sjá turn eða nokkuð slíkt, hæst á þakinu, kannski 25 metra frá jörðu var svo lítill kross svo fólk gat séð að hér var kirkja. Við kirkjudyrnar voru tvær manneskjur ellilífeyrisþegar, karl og kona, sem tóku í hendina á hverjum gesti og buðu þeim góðan daginn. Við komum inn og var þar fyrir heljarmikið andyri hvar fólk stóð í hópum og virtist ræða einhver mál og ekki tókst mér að heyra hvað þeim fór á milli. Nokkur borð voru á víð og dreif um andyrið þar sem fólki var boðið að gefa peninga í til ýmiskonar góðgerðarmála. Við létum sem við sæjum ekki þessi borð og héldum áfram inn í kirjunna sjálfa. Það kom mér talsvert á óvart að sjálf kirkjan, þ.e. hvar helgihaldið fer fram, var minna en andyrið. Þó var þar sennilega pláss fyrir 200 manns og voru sæti og þessháttar mjög þægileg. Loks mættu prestarnir á svæðið og voru þau þar tvö hjónin. Fyrst mælti karlinn og tilkynnti hvaða ágætu málefnum fólk ætti að gefa peninga til. Því næst mætti í púltið gamallmenni nokkurt sem tilkynnti að einhverri söfnun af einhverju tagi væri hafin, ég man ekki hvað þetta var nákvæmlega en þetta virtist heilmikið program. Því næst mælti kerling nokkur um miðjan aldur og tilkynnti að þar sem bæjarfélagið stæði í svo miklum vexti þá væri kominn tími til að kirkjan talaði við safnaðarmeðlimi til þess að finna út hvernig best væri að laða aðflutta að kirkjunni. Til að taka þátt í þessu prógrammi þurfti fólk bara að skrifa niður nafn sitt í þar tilgerða bók og mæta svo í viðtal við hlutlausan prest einhverstaðar annarsstaðar frá. Þegar kerlingin lauk loksins máli sínu var komið að agalega lélegum karlakór að syngja illa í alltof langan tíma. Loks var almennum safnaðargestum gefið tækifæri á að biðja um sérstakar bænir eða vekja athygli á einhverjum dásamlegum viðburði. Og ekki stóð á viðsvörum. Sonur einnar úr kórnum var átta ára þennan dag, pabbi annarar var á spítala og þurfti að biðja fyrir honum. Stelpa ein vitlaus bað fyrir krökkum nýútskrifuðum úr menntaskóla, kerling nokkur bað fyrir karlmönnum safnaðarins sem ku vera óvenju virkir í safnaðarstarfinu, ungur maður bað fyrir kvennfólki safnaðarins sérstaklega mæðrum, frændi einnar var að leita að vinnu, og svo mætti of lengi telja. Loks var þessi brunnur uppþornaður og hafði liðið ekki meira að segja í bili. Var þá sunginn sálmur við miklar undirtektir þó ekki hafi verið jafn fjörlegt og maður sér í sjónvörpun frá svertinjakirkjum.
Svo kom að börnum að taka þátt í messunni og streymdu um 25 krakkar að altarinu hvar kvennpresturinn sat með ofna bastkörfu á milli lappanna. Í þessari körfu, sagði hún krökkunum eru gleraugu sem safnaðargestir gáfu sjóndöprum í Líberíu. Í gegnum þessi gleraugu getur fátækafólkið séð Guð, því fólk gaf þessi gleraugu (sem það er hætt að nota) sem vitnisburð til góðgerðar Krists osfrv. Loks var ormunum skipað að koma við körfuna á meðan prestfrúin bað þess að með nýju gleraugunum sjái Líberíumenn Guð skýrt og greinilega.
Næst var sunginn sálmur. Þá var lesið úr Guðspjöllunum og er alveg dottið úr mér hvað það var. Loks messaði presturinn yfir okkur eða flutti það sem var kallað sermon. Mér var gjörsamlega hulið um hvað hann var að tala en það var eitthvað um samfélags kristinna og sigur þessa samfélags á klofningi. Þá var sungið lag sem sannaði þetta alveg!
Þá var sunginn sálmur sem ég hafði mjög gaman af. Menn muna kannski eftir þessum sálmi úr Mr. Bean þætti, hvar Mr. Bean kann ekki textann og syngur þessvegna bara undir hallelujha hlutanum. Allavega skellti ég uppúr þegar lagið byrjaði og söng bara undir þessum hluta sem ég þekkti. Það var nokkuð gaman og bætti dálítið úr leiðindunum sem voru þarna annars. Næst spilaði tónviltur bjöllukór sem spilaði á bjöllur. Þó liðið væri talsvert úr takt, þrátt fyrir að feit stelpa stæði fyrir framan kórinn veifandi priki, þá var nokkurnveginn hægt að heyra að þarna var eitthvað lag á ferðinni. Loks var annar sálmur sunginn og fólki loks hleypt út nema þeim sem vildu þiggja brauð og vín. Við vorum sem betur fer ekki í þeim hóp og höfðum okkur á brott hið snarasta. Var að hugsa um að kíkja á kaþólskukirkjuna við hliðina un næstu helgi, en við sjáum hvað setur.

Saturday, May 08, 2004
Pantaði í gær laptop. Mér skilst nefninlega að svoleiðis sé nauðsynlegt þarna í skólanum. Útgjöldin í sambandi við þennan blessaða skóla virðast ekki ætla að taka nokkurn enda. Spilaði líka golf í gær og gekk það hrikalega illa, ég held að ég væri meira að segja í vandræðum með að vinna Sigga og Árna með svoleiðis spilamennsku. Úrslitin birtast ekki á línuritinu hér til hægri vegna þess að þetta gerðist á öðrum golfvelli og er þessvegna ekki sambærilegt (sem betur fer). Í dag á ég líka að fara að spila golf með Holmes, bræðum hans tveimur, og bróðursyni. En það lítur út fyrir rigningu þannig að kannski verður ekkert af þessu. En við sjáum nú bara til með það.
Loks skal nefna að ég bætti hér inn á síðuna hlekk sem ég rakst á í gær. Þetta er bloggið hennar Guðlaugar og má skoða það með því að smella á hlekkinn Kvari hér til hægri.

Friday, May 07, 2004
Hartmann virðist óendanlega latur að blogga. Ég er að hugsa um að eyða linknum á síðuna hans ef hann tekur sig ekki á strákurinn.
Wednesday, May 05, 2004
Á mánudaginn var vigtað og komumst við þá að því að ég léttist um 1,36 kg. Jennifer hinnsvegar þyngdist um 2,7 kg. Ég held að það sé því að kenna að hún fékk dálitla nýnrasýkingu og hefur þessvegna drukkið mikið af ávaxtasafa sem er náttúrulega alveg bannaður. Ég þykist þess fullviss að það lagist enda eru nýrun nú í góðu lagi. Endilega skoðið línuritið hér til hægri.
Nú er ég í fríi það sem eftir er þessari viku og get þessvegna slappað af.
Nokkrir fjölskyldumeðlimir efuðust um hæfileika mína til að síkka buxur. Ég ef þessvegna mikla ánægju af að tilkynna að saumaskapurinn tókst mjög vel. Ég hef nú lokið við síkkun á einum að fimm pörum sem þarf að lengja. Kannski ég vinni í næstu í þessari viku. Hver veit?

Sunday, May 02, 2004
Í dag og í gær hefur veðrið hérna verið voðalega leiðinlegt, rigning, kuldi og rok. Annars lygndi hér í dag og gat ég þessvegna grillað í friði tvær kalkúnabringur, cajun style. Á morgun er vigtunardagur og bíða margir eflaust spenntir eftir því. Í gær fórum við í bíó og sáum The Secret Window með Johnny Deep. Jennifer fannst myndin léleg á meðan ég hafði ágætt gaman af henni.
Á morgun þarf ég að fara aftur í vinnunna, en það er ekki svo slæmt þar sem ég tek mér frí á föstudaginn, þar sem ég á tvo frídaga inni sem ég þarf að taka áður en ég hætti. Ég vinn þessvegna bara tvo daga í þessari viku, sem er svosem alveg nóg. Keypti um daginn bók sem heitir the John Fante Reader og hef verið að dunda mér við að lesa hana yfir helgina. Þessi John Fante er minn uppáhalds bandarískur höfundur.
Ég veit ekki hvort Íslendingar kannast við veitingastað Bandarískan sem heitir Hooters. Hvað með það, þeir eru með happadrætti í gangi sem ég nenni ekki að taka þátt í því engir svoleiðis staðir eru hér nálægt, auglýsing um þetta fyldir hér í lokin:
"Register for your chance to win a trip to the Iceland Open and up to Fifty Million Kronur at Participating Hooters Restaurants."