Thursday, December 30, 2004
Það er ljótt að segja frá því, en fólk er alveg hætt að skoða þessa síðu. Þessvegna verður þetta allt mun óformlegra héðanífrá. Erum að fara til Toledo seinna í dag og verðum þar framyfir áramót. Óska þeim sem hingað villast gleðilegs og farsæls nýárs. Horfði í gær á Nóa Albínóa sem ég fékk í jólagjöf, sú mynd var nú bara ansi góð. Á helling af öðrum myndum sem ég þarf að horfa á, þarf að taka þetta með mér til Toledo.
Tuesday, December 28, 2004
Þá er komið út jólahefti bewilderingstories.com í því hefti birtist það besta af liðnu ári, sérvalið af ritstjórum. Enginn annar en Ásgrímur, frændi minn, hefir þar sögu. Til hamingju með það!
Thursday, December 23, 2004
Veðurguðirnir voru mér hagstæðir í dag, og á ég varla slíku að venjast. Þannig voru mál vaxin að ég fór í gær og ætlaði að kaupa inniskó handa Jennifer og ýmislegt annað. Vildi þó ekki betur til en svo að þegar kom að því að borga þá hafði myndast svo agaleg röð við kassana að ekki sá fyrir endann á. Ekki lét ég bjóða mér það, heldur fór heim allslaus og kauplaus, en hét þess um leið að vakna snemma næsta morgun. Svo vildi svo vel til að í nótt var hér mikil snjókoma og stormur. Vegna veðurs vor kanarnir feimnir við að versla í dag og ég var þessvegna aleinn í búðunum!! Já, hver segir að það borgi sig ekki að bíða fram á seinustu stundu?
Wednesday, December 22, 2004
Í fyrradag var rosalega kalt hér, ef þetta er reiknað útí íslenskum gráðum, þá var hér 16 stiga frost. Ég hef sett myndir af jólaboðinu sem við vorum með um daginn á netið, skoða má þær myndir með því að smella hér og smella svo á Christmas 2004.
Þarf að klára jólainnkaupin í dag. Það verður sennilega eitthvað vesen, aðallega vegna þess að ég veit ekki hvað á að kaupa. Fór í búð í gær og keypti jólagjöfina handa Holmes, við ættlum að gefa honum DVR græju sem tengist við gervihnattasystemið. Þetta er eiginlega bara harður diskur sem virkar svipað og videotæki, nema hvað það er líka hægt að nota þetta til að stoppa sjónvarpsendinguna, spóla til baka og þessháttar á meðan verið er að horfa á sjónvarpssendingun. Kannski þekkir einhver svona græju undir heitinu TíVó. Hér verður mikið að gera næstu daga. 24 förum við í heimsókn til Rick yngri og verðum þar sennilega einhverja klukkutíma, því næst ætla ég að elda íslenskan jólamat, ef maturinn kemur einhverntíman frá Belgíu. 25 förum við í heimsókn til Johns þar sem hann ætlar að útbúa veislu. 26. förum við til kerlingarinnar, þar verður sennilega boðið uppá eitthvað óætt (enda manneskjan með eindæmum léleg í eldamennsku, getur varla grillað ætar pylsur). 28 förum við svo til Toledo þar sem við ætlum að vera í rólegheitunum þangað til á næsta ári.

Tuesday, December 21, 2004
Þá eru prófin búin. Var að versla seinnipartinn í dag. Er að hugsa um að setja hér upp myndir af jólaboði sem var hér um daginn!
Tuesday, December 14, 2004
Nú eru í gangi próf. Mikið svakalega leiðist mér þau.
Monday, December 06, 2004
Ný saga birtist eftir Ásgrím í nýjasta hefti bewildering stories. Þar segir hann frá sínum síðustu ævintýrum.
Friday, December 03, 2004
Illugi: færðu prósentur?
Dýrkeyptur matvælaþjófnaður í Hagkaup
Dýr varð Hafliði allur manni sem hnuplaði matvörum fyrir rúmar 1.500 krónur í Hagkaup því hann hefur verið dæmdur til að borga 10.000 krónur í sekt og 90.000 í málsvarnarlaun auk annars sakarkostnaðar.
Þjófnaðurinn átti sér stað í Kringlunni í ágúst en öryggisvörður fylgdist með manninum, sem er á fertugsaldri, á eftirlitsskjám. Kannaðist hann við manninn er hann kom inn húsið þar sem hann var grunaður um þjófnað úr sömu verslun fyrr í sama mánuði en ekki náðst.
Maðurinn krafist sýknu en dómara þóttu viðbárur hans og skýringar fráleitar en við rannsókn málsins og rekstur var fram lagður geisladiskur með upptökum úr öryggismyndavélakerfi sem þóttu sýna fram á þjófnaðinn.

Helv. skólinn. Mynd

Wednesday, December 01, 2004
Langir dagar í Danmörku
19 ár á degi hverjum í að eyða ruslpósti
Danskir tölvupóstsnotendur fá að meðaltali um 10 svonefnd ruslskeyti í pósthólf sín á degi hverjum, að því er blaðið Politiken greinir frá. Sá tími sem fer í að eyða skeytunum samsvarar 19 árum á degi hverjum. Þetta telur ráðherra vísindamála í Danmörku of mikið og hefur gert áætlun um átak á ýmsum sviðum gegn slíkum sendingum.