Thursday, September 30, 2004
Jú, hér er kannski ýmislegt að frétta. Fyrirtækið sem Jennifer vann hjá var skyndilega lagt niður. Ekki vildi samt betur til að nýtt fyrirtæki var stofnað daginn eftir, og var hún sett strax þar í vinnu. Á meðan var allt brjálað að gera í skólanum. Þurfti að skrifa agalega leiðinlega ritgerð um geðrannsóknir.
Já, það er ekkert annað. Það leiðinlegasta er kannski að nýja jobbið hennar Jennifer er á ágætis fjarlægð frá þeim stað hvar ég nem, þessvegna þarf ég nú að þjösnast í strætó eins og algert fífl.
Skemmtilega fréttin er kannski sú að ég er í fríi á mánudaginn og ætla þá að reyna að spila golf. Það verður þá sennilega síðasta golfið í ár, nema kannski maður skelli sér til Flórída, eða Californíu.
Jú, svo lenti ég í málaflutningi á þriðjudaginn þar sem ég hélt því fram að bannað væri að gera geðrannsókn á ímynduðum skjólstæðingi. Það gekk skammlaust fyrir sig, aðallega vegna þess að ég er svo lengi að hugsa á meðan ég tala að ég hafði voðalega lítinn tíma til að segja einhverja vitleysu. Þá heldur fólk kannski að ég sé að hugsa um rökfærslu þess sem ég er að reyna að segja, en í rauninni man ég bara ekki hvaða orð á að nota. Já, stundum borgar sig að vera Íslendingur. En ekki alltaf, er ég tildæmis enn að ná mér eftir kennarverkfallið sem stóð lengi á meðan ég var í menntaskóla. Þá fór ég með afa og ömmu til Vestmannaeyja, og lenti þar í ýmsum ævintýrum sem sett hafa mark sitt á sálina, og á markið þar eftir að vera allt til æviloka. Líkt og krumla kölska hafi farið þar um og skilið eftir sig ljóta rák, líkt og á ýsu.

Wednesday, September 29, 2004
Jú, það er satt. Dálítið er um liðið síðan ég birtist hér síðast. Því er helst að kenna að voðalega mikið hefur verið að gera hjá okkur báðum. Auk þess, þá er ég hættur að drösla tölvunni með mér í skólann á hverjum degi. Fljótlega birtist hér kannski útskýring á því sem hér hefur farið fram.
Sé að Ásgerður og hennar hyski eru að reyna að setja þjóðfélagið á hausinn. Það er svo mikil græðgin í þessu kennaraliði. Réttast væri að krakkarnir kenndu sér bara sjálfir.

Sunday, September 12, 2004
Leikrit í einum hluta. Sönn saga
Q: Did you ever spend a night with this man in Chicago?
A: I refuse to answer that question.
Q: Did you ever spend a night with this man in New York?
A: I refuse to answer that question.
Q: Did you ever spend a night with this man in Miami?
A: No.

Friday, September 10, 2004
Jews for Jesus
Já, sá í dag stóra og mikla rútu sem á stóð Jews for Jesus. Heimspekingarnir meðal vor nenna kannski að tala eitthvað um það.
Er byrjaður í skólanum a ný. Það gengur þokkalega.