Thursday, August 25, 2005

Í skólanum, í skólanum.... 








Í næstu viku fer ég í 27 viðtöl vegna tilvonandi sumarvinnu að ári. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Í tilefni af því fór ég í klippingu. Svo byrjar skólinn September sjötta. Enn er samt fremur tómlegt þar um að líta.
Síðustu helgi skruppum við til detroit til að horfa þar á tígrana keppa í hafnabolta. Fór leikurinn í margfalda framlengingu og var farið að líða að miðnætti þegar ósköpin voru loksins búin. Jú, og tígrarnir sigruðu meira að segja. Eftir leikin var svo bara ágætis flugeldasýning.


Friday, August 19, 2005

Fyrir utan gluggan minn 

Sefur oft heimilislaus róni. Sá lyktar agalega illa, enda gengur hann ætíð í sömu fötunum. Svo lekur karlinn, eða virðist allavega ekki hafa neina stjórn á þvagfærum. Eitt sinn kom hann inn í bygginguna, ógeðsleg var lyktinn. Þeir sem hættu sér fram á gang fundu fyrir miklum sviða í augunum. Líf og fjör á Detroit mean streets.


Saturday, August 13, 2005

Hingað kom í gær póstkort frá langförulum Breiðabliksbúum. Gaman var að því og fá þau þessvegna heiðursverðlaun dagsins. Að þessu sinni eru þau ekki neitt. Takk fyrir.


Monday, August 08, 2005

Vegna mikillar eftirspurnar... 

Saturday, August 06, 2005

Það var sæmilega mikið að gera þessa viku. Um helgina fórum við í Bíó og sóum þar ágætis mynd um það þegar Kalli heimsótti sælgætisgerðina.
Auk þess bætti ég við hillu í skápinn okkar. Á því hefur legið síðan fyrr í sumar.
Við keyptum loftviftu í Walmart fyrir 15 dollara. Hana þufti að setja upp.
Það þurfti að keyra á alla þessa staði
Fyrir utan bíóið er gosbrunnur. Mikið skelfing var nú heitt þann dag. Það held ég nú!


Thursday, August 04, 2005



Jæja, þá bilaði druslan hans gamla. Bremsurnar fóru. Mikil útlát urðu til þess að koma draslinu aftur á götuna. Já.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org