Sunday, February 27, 2005

Í gær keyrðum við til Adrian, svona klukkutíma akstur, og ég lét klippa hár á meðan Jennifer verslaði. Það var svosem ágætt og ekki yfir neinu að kvarta, nema benínverðinu.
Annars sýnist mér að Ásgerður og Árni ættu að stofna blog síðu þar sem þau segja frá byggingarferlinu, og leyfa manni að fylgjast með. Ef áhugi er fyrir hendi, þá er hægt ð nota bloggið hans Hartmanns. Ekki entist hann nema viku í því.


Thursday, February 24, 2005

Þá er fimmtudagur hér í Bandaríkjunum. Á mogun byrja ég í fríi og þarf ekki að fara aftur í skólann í rúma viku. Verst er aftur á móti að ég hef tekið að mér að skrifa agalega langa ritgerð um fiskveiðistjórnun Evrópusambandsins þannig að ég þarf sennilega að flækjast eitthvað hérna í skólanum við rannsóknir og lestur.
Annars er hér lítið að frétta. Veit ekki hvernig stendur á því.
Mér skylst að búið sé að taka fyrstu skóflustunguna fyrir höllina Ásgerðar og þeirra. Til hamingju með það. Veriði nú öll dugleg að hjálpa þeim við þetta!


Sunday, February 20, 2005

Thursday, February 17, 2005

Í dag tók ég tölvuna með mér í skólann þannig að eitthvað tækifæri ætti að gefast til þess að skrifa hérna eitthvað á milli þess sem ég les um takmarkaða ábyrgð hlutafélaga, sem er, eins og þið vitið, æsispennandi efni. Kannski ef tími gefst mun ég segja nánar frá því.
Í fyrradag fór ég á bókamarkað hjá South Lyon bókasafninu. Þar voru seldar notaðar bækur sem vitleysingar gefa safninu. Mest er þetta náttúrulega rusl, en inn á mill leynast gersemar. Það besta við söluna er að hver bók kostar aðeins 25 cent, eða um 15 krónur. Ég keypti ekki nema tíu bækur og var það talsvert minna en síðast þegar svona vel var boðið. Eina bókin sem ég hef lesið hingað til er leiðbeiningabæklingur uppá einar 50 síður er kallast "how to be a clown." Þar eru gefnar góðar hugmyndir um hvernig maður getur þróað sína eigin trúða rútínu. Tildæmis ku ver agalega fyndið að vera með langt og mikið nef, og hafa svo fremst á nefinu þráð, í þráðin skal svo hengja einhverskonar pylsu. Þið getið rétt ýmindað ykkur hve áhorfendum verður skemmt er trúðurinn hleypur fram og til baka í eltingaleik við pylsuna. Jú við vitum öll að trúðurinn mun aldrei ná pylsunni. En það er víst það sem er svona aðlaðandi við trúða, nefninlega að þeir eru agalega vitlausir, en samt bjartsýnir. Klaufabárðarnir Pat og Mat eru einmitt gott dæmi um þetta. Held ég kíki þarna aftur á morgun og athugi hvort nýjar bækur séu komnar.
Annars er lítið um að vera hér. Talaði um daginn við vitleysing í Alaska sem er jafnvel að hugsa um að ráða mig í vinnu yfir sumarið. Annars ætla ég að sækja um á nokkrum stöðum í viðbót og sjá svo hvað setur. Þannig að vinnumálin eru öll í lausu lofti, enn sem komið er allavega.


Friday, February 11, 2005

Thursday, February 10, 2005

Loksins er smá tími til að skrifa hérna eitthvað. En þá dettur mér náttúrulega ekkert í hug. Ætti kannski að snúa mér að öðru, þarf að skrifa bréf til milljónamærings í Grand Rapids og dómara í Novi. Annars er nóg að gera. Er á fullu í atvinnuleit og lítur helst út fyrir að ég fari til Alaska. En ég hef enn ekki gefist upp. Er annars ekki allt gott að frétta? Ég krefst þess að allir sem þetta lesa svari og gefi dálitla greinagerð. Tildæmis er ég forivitnn að vita hvað er að frétta af Illugamálinu svokallað.


Tuesday, February 08, 2005

This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org