Wednesday, February 18, 2009

Þá er það að frétta að við erum búin að kaupa okkur hús. Fyrr hefði reyndar mátt fyrr vera, enda erum við komin á fertugsaldurinn. Allavega, þá er hægt að sjá nokkrar myndir frá fasteingnasalanum hérna: http://5304nlieb.com/.

Við fáum afhent um mánaðarmótin, og stefnum á að flytja í kring um 5. mars. Þá er spurning hverjir mæta í flutninginn?


Friday, January 02, 2009

Gleðilegt Ár! 

Til hamingju með nýárið öll sömul. Hér gengu áramótin að mestu slysalaust fyrir sig, enda lítið um að vera í Bandaríkjunum á þeim tíma. Annars er það helst að frétta að við Jennifer erum að velta því fyrir okkur hvort nú borgi sig að kaupa hús. Eins og við er að búast er íbúðamarkaðurinn hérna heldur rólegur og þar af leiðandi eru verð heldur lág, allavegana í sögulegu sambandi. Við leigðum okkur bíl ígær og keyrðum framhjá nokkrum húsum sem eru til sölu. Okkur leist svona ágætlega á sum, þannig að Jennifer ættlar að kíkja betur á þetta á fimmtudaginn. Annars voru jólin í ár þau fyrstu frá upphafi að ég borðaði ekki íslenskan hamborgarhrygg á aðfangadag. Ætlaði í staðinn að hafa nautalund, en það fórst reyndar fyrir líka vegna þess að við fórum óvænt á sýningu af hnetubrjótinum. Ég sofnaði næstum því fyrir hlé. Eftir hlé rættist svo reyndar úr sýningunni þannig að ég gat haldið mér vakandi nokkuð sársaukalaust. Því varð svo úr að við vorum með amerísku nautalundina á jóladag, sem var fínt. Þannig að jólin voru heldur amerísk yfirbragðs í ár, fyrir utan hvað að ég átti kassa af malti og appelsíni sem Ásgerður systir mín og Árni ektamaður hennar komu með þegar þau voru hérna síðast. Yfirleitt hef ég blandað kóki í svoleiðis drykk en þar sem ég var ekki með íslenskt kók, þá sleppti ég því. Það var nú bara ekki svo vitlaust, þannig ég sleppi kanski bara kókinu héðan af.
Fékk bókina Ódáðahraun í jólagjöf frá foreldrunum og las hana í gær. Stefán Máni er fínn höfundur og bókin er mjög góð. Fékk líka Sendiherrann eftir Braga Ólafsson, sem ég á eftir að lesa. Las Mávahlátur fyrir nokkrum árum og fannst hún fín. Amma gaf mér líka fína bók um íslenska þjóðfræði. Hef aðeins byrjað að blaða í henni og þar virðist margt merkilegt. Tildæmis hef ég nú þegar lært að í lok slátturtíðar má alls ekki hirða síðustu leifarnar af slættunni. Heldur skal skilja slíkt eftir á túninu og veit það á góða slátt að ári. Þetta á sennilega eftir að koma sér vel. Eftir lestur þessarar bókar verð ég sennilega sérfræðingur um forna sveitahætti, sem verður nokkuð gaman. Að auki fengum við margar góða gjafir bæði héðan og þaðan og kunnum við kærar þakkir fyrir.
Í þriðja lagi er það að frétta að við ættlum að fara taka okkur viku frí um miðjan Janúar og skreppa til Alaska að heimsækja systur Jennifer og ektamann hennar. Þetta veður þá í fyrsta skipti í tæp tvö ár að ég fer í frí, en síðast var ég í fríi þegar við vorum síðast á Íslandi, í Mars, 2007.


Monday, December 15, 2008

Mér hafa a birst hálfkveðnar óskir um að ég lísi veðrinu hérna í Chicago. Það hefur verið ágætt .það sem af er vetri, lítið snjóað og hitinn sæmilega hár. Í dag er hinsvegar ansi kalt. Útreiknimeistarar konungs reikna að í augnablikinu sé 22 stiga frost á celsius. Svo er orðið jólalegt ansi víða, sérlega í kringum verslanir og þessháttar. Annars er fólk sem býr hérna niðri í bæ voðalega lítið fyir að versla. Í ár ætlum við að bregða út af forni venju og vera ekki með íslenskan mat á aðfangadag. Ég hef verið settur í að ákveða hvað skal hafa í staðinn. Ætla allavega að kíkja á einn góðan meatpacker og athuga hvað sé gott í boði. Þrennt kemur helst til greina, lambakjöt, svínakjöt eða nautakjöt. Svo vel vill til að við eigum slatta af jólaöli sem Ásgerður og Árni komu með með sér þegar þau voru hérna síðast. Svo sendi mamma mér í gær forláta uppskrift af hálfmánum sem við reynum kannski að baka einhverntíma fyrir jól. Hefur einhver vit á hvort betra sé að nota sveskjur eða döðlur í svoleiðis?


Sunday, November 30, 2008

Haukur er á lífi. Ekki veit ég hvort mikið verður ritað hér, frekar enn fyrri daginn. Annars er allt gott að frétta, eins og það gengur. Hér er vetur, en samt ekki snjór.


Saturday, May 26, 2007

Ég hef tekið eftir að hér hefur dálítið verið kvartað yfir hvað ég hef lítið skirfað á þessa síðu í þónokkurn tíma. Þannig eru samt mál vaxin að ég hef verið ótrúlega upptekinn í vinnunni. Ég byrjaði að vinna mánudaginn eftir að við komum frá Íslandi, semsagt fyrir rúmum mánuði. Þá er ég yfirleitt að vinna til 7 eða 8 á kvöldin, og stundum lengur. Ég kann bara vel við mig annars, þetta er nokkuð áhugaverð vinna og mér leiðist ekki. Að öðru leiti höfum við verið upptekin við að kaupa húsgögn. Við keyptum sófa og tvo stóla, borðstofuborð og stóla. Og bókaskáp úr IKEA. Svoleiðis leiðangrar eru ansi leiðigjarnir þegar maður er ekki á bíl, þannig við erum farin að láta senda þetta allt til okkar. Erum ekki búin að fá allt draslið ennþá, þannig að enn eru hér bókakassar út um allt. Enn þetta er allt á réttri leið og eftir um tvær vikur ætti íbúðin að vera í nokkuð góðu standi. Annað er það að frétta að Jennifer er byrjuð í námi, er að læra forensic accounting sem er kannski nokkurskonar réttarendurskoðun. Hún kann mjög vel við sig og er að hugsa um að fara í endurskoðendanám. Ég er orðinn löggiltur lögfræðingur hérna í Illinois fylki, sem er ágætt. Sumarið hefur enn sem komið er verið nokkuð svalt, sem er frábært, því fátt er mér verr við en helvítis hitann.
Meira seinna.


Sunday, March 18, 2007

Í gær var sankti Patreks dagur hér í Chicago. Sá dagur virðist agalega ganga út á að unglingar og háskólafólk vaknar fyrir allar aldir, klæðir sig í græn föt, fær sér grænan bjór í morgunmat, fer í lestina sem gengur niður í bæ og öskrar í eyrun á Hauki og Jennifer sem eru á leiðinni að klára að mála. Svo heldur fólkið áfram að drekka grænan bjór fram eftir degi þangað til að ekki er meira hægt að drekka. Þess á milli var boðið upp á skrúðgöngu frá einu götuhorninu til annars. Loks sáu borgarstarfsmenn um að hella grænum lit í ánna og varð hún þessvegna skærgræn, í staðin fyrir venjulega dimmgræna litinn. Eða svo skilst mér allavega, við vorum nefninlega að mála.
Málingavinnan gekk bara nokkuð vel, og við erum ánægð með hvernig liturinn kemur út. Ég tók með mér myndavélina il þess að taka mynd af fínlegheitunum, en ég gleymdi helv. myndakortinnu í tölvunni hérna heima. Þessvegna verða þær myndir teknar og birtar síðar.


Sunday, March 11, 2007

Í dag vorum við að mála í nýju íbúðinni. Settum grunn á tvo veggi. Mikið skelfing er mikið vesen að mála. Voðalega lítil viðbrögð hafa verið við beiðni okkar um flutningafólk. Lítur út fyrir að mikið verði um pylsur þegar við komum.
Vinur okkar ætlar að koma að heimsækja okkur á meðan við erum á Íslandi. Sá var í lögfræði í sama skóla og ég, og er líka ný fluttur hingað til Chicago. Von er á honum til landsins 12. apríl til 17.
Eins og sést vonandi höfum við verið að vinna í því að setja upp vefsíðu svo fólk á Íslandi og í Michigan geti fylgst með okkur. Héðan í frá er hægt að nálgast þetta alltsaman á www.haukurandjen.com.
Um helgina leigðum við bíl frá bílaleigu. Lögðum honum svo hérna fyrir utan með þartilgerðu sérleyfi sem þarf að kaupa hér í Chicago til þess að leggja. Ekki vildi samt betur til en að þegar við vöknuðum var búið að setja sektarmiða á bílinn. Við fórum út og tókum myndir, skrifuðum heljarinar greinagerð og tókum afrit af hinum og þessum gögnum sem við sendum svo Chicagoborg í þeim tilgangi að mótmæla sektinni. Þegar allt var samankomið þá sendi ég 7 blaðsíðna skýrslu á fíflin. Gaman verður að sjá hvað kemur út úr því.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org