Friday, February 13, 2004


Í dag er föstudagurinn þrettándi hér í Bandaríkjunum. Ég hélt upp á hann með því að sparka óvart í fullan kaffibolla sem eitthvert fíflið í vinnunni skyldi eftir á ólíklegasta stað. Svo þurfti ég að þurka upp sullið því viðskiptavinir Hagkaups vildu ekki klofa yfir sorann. Ef ég verð ekki óheppnari en þetta þá verð ég feginn.
Á morgun er nýr dagur og þarf Haukur þá að bregða sér bæjarleið svo hægt sé að klippa hárið. Að baki þeirri klippingu stendur löng saga, sem nær allavega 5 ár aftur í tímann, og veit ég sjálfur ekki endalokin, kannski verða þau skýr á morgun, kannski ekki. Meira um það seinna.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org