Thursday, February 19, 2004
Í fyrradag fór ég til tannlæknis, sem er ekki í frásögur færandi frekar en annað sem hefur birst hér. Þangað fór ég í þeim erindagjörðum að láta hreinsa tennurnar og skoða. Vill nú ekki betur en svo til að tannlæknirinn, svokallaði, þykist finna allskonar rýrnun, og holur, og hver veit ekki hvað meðal minna ágætu tanna. Heldur hann því svo fram að nú þurfi að semja margra ára áætlun um það hvernig skuli gera við tennurnar, og má ég búast við skriflegu yfirliti næst er ég fer til læknisins, sem verður alltof snemma. Mig grunar samt, að þegar allt þetta viðgerðarstúss er yfirstaðið, þá flytji þessi tannlæknir í stærra hús og kaupi sér nýjan bíl.