Wednesday, February 25, 2004

Í gær var enn skorið niður í vinnunni. Haukur er nú orðinn hálfatvinnulaus og vinnur bara tvo daga í viku, föstudaga og þriðjudaga. Í gær fór ég þessvegna úr vinnunni snemma og fór ásamt tyrkneskum vinnufélaga að spila pool, skák og fótbolta spil á meðan Jennifer fór á körfuboltaleik með einhverjum vinnufélögum. Tyrki þessi er all kappsamur og vildi hann endilega að einhver stæði uppi sem sigurvegari í þessum þrennum þrautum. Þannig voru reglurnar að sá sem vann fimm leiki vann hverrja grein. Sá sem aftur vann tvær greinar vann keppnina. Þetta byrjaði allavega mjög tvísýnt. Í upphafi tapaði ég fyrstu tveimur pool leikjunum. En vann svo þann þriðja 2-1 fyrir Tyrkja. Ég tapaði svo næsta leik en vann þarnæstu tvo, 3-3. EKki vildi svo betur til en ég tapaði síðustu tveimur leikjunum og staðan var 1-0 yfir allt. Aftur á móti kom ég að hefndum með því að vinna fyrstu fimm skákirnar, sem er óvenjulegt því við teflum oft í vinnunni og erum nokkuð jafngóðir eða lélegir. Allavega, þá var ekkert eftir nema fótboltaspilið. Ég tapaði fyrsta leiknum, vann næstu tvo, en tapaði svo fjórða, 2-2. Síðan vann ég næstu tvo leikina, tapaði einum og vann svo síðasta leikinn, 3-5. Haukur stóð þessvegna uppi sem sigurvegari kvöldsins, 1-2 yfirallt.
Og svo er ekkert annað.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org