Thursday, February 26, 2004

Í gær var ég í fríi sökum niðurskurðar. Ákvað ég þessvegna að hefja verkefni sem lengi hefur verið í bígerð hérna, nefninlega að breyta húsgagnafyrirkomulagi í sefnherberginu. Þetta byrjaði ágætlega þegar ég fór út í nóatún (Walmart) og keypti mér fataslá á hjólum í þeim erindum að hækka fyrirverandi fataslá í skápnum og hafa aðra undir. Slá þessi var ekki ódýr, heldur kostaði $20 auk þess sem ég lagði talsverða vinnu í þetta, meðal annars fólgna í því að mæla fyrir slánni. Svo fór ég heim, og setti þetta saman og því næst tók ég öll fötin úr skápnum, svo ég gæti hækkað slánna sem var þarna fyrir, og setti þau á nýju græjuna. Einhvernveginn hafði ég gleymt að lesa leiðbeiningar sem komu með þessari annars ágætu slá og setti alltof mikil þyngsl á draslið. Ekki vissi ég fyrr en að ég tók eftir að annar endinn var farinn að síga, en það var of seint, uppistöðuplastið bognaði og sláin nýjar er núna ónýt. Ekki skal þessvegna hræra meira í skápnum. Að öðru leiti gengur prógramið vel, ég tók kommúðu sem við áttum og flutti niður í kjallara, þannig að nú er mun rýmra, þar sem áður vor þrengsli.
Í gær las ég líka bók um Suðurstrandar megrunarkúr, sem áhugi er fyrir hérna á heimilinu að prófa, það er aðallega tengdapabbi sem vill flækja svoleiðis öll mál að byrja í svona megrun. Honum til samlætis og til einföldunar höfum við Jennifer ákveðið að prufa þetta líka. Mér sýnist að prógrammið byrji á Mánudaginn þegar kallinn kemur frá Flórída. Annars er þetta voðalega lítið mál sýnist mér.
Í gær eldaði ég tildæmis máltíð sem ætti vel heima í þessu suðurstrandadæmi. Það var appelsínu og hvítlauks svínalund. Með lundinni var svo hrísgrjón og íslensk piparsósa, sem hvorttveggja verða að hverfa í kúrnum, allavega fyrst um sinn. Í staðinn verður fólkið að éta gufusoðin grænmeti eða eitthvað svoleiðis á meðan Haukur étur bara meira kjöt.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org