Thursday, February 12, 2004
Í morgun kláraði ég að lesa bók sem mér hlotnaðist um jólin. Þessi heitir Öxin og Jörðin og er um Jón Arason biskup og syni hans. Þeir feðgar koma nokkuð vel úr þessari sögu, og talsvert betur en grillspjótamaðurinn Marteinn Einarsson, hvers heimska er yfirþyrmandi. Biskupsfeðgar sýnast afturámóti framsæknir menn og fóðurlandsvinir miklir, ef ekki staðfastir kaþólikkar. Annars er bókin ágæt þó svona sögulegar skáldsögur fari oft í taugarnar á mér. Þá þarf að bera saman viðurkenndan sögulegan skáldskap við skáldskap í formi sagnfræðirita. Við hendina hef ég litla bók sem heitir History of Iceland: From the Settlement to the Present Day eftir einhvern Jón R. Hjálmarsson. Þar má finna 3 bls um siðaskiptin svokölluðu. Þar segir meðal annars: The bishop and his sons were taken to Skálholt to be kept prisoners until the 1551 parliament would determine their faith. Some Danish officials and Icelanders who were appointed to guard them were very afraid of men from the north coming to rescue their leaders, and in their anxiety one of th eguards declared that ´the axe and the earth would keep them best'. It was soon decided, after repeating former charges against them, to put all three of them to death. On November 7, 1550, they were beheaded in Skálholt." Það er nefninlega það. Og ef ég man barnaskólanámið rétt (sem ég geri sennilega ekki) þá fauk um leið höfuðið af Íslensku miðöldunum, þó mér sýnist að þær hafi staðið allavega fram til 1930, eða svo.
Jæja, þá hefur þegar birst hér meira en ég átti von á. Hvað gerist á morgun? Tja, það veit enginn nema almættið.
Jæja, þá hefur þegar birst hér meira en ég átti von á. Hvað gerist á morgun? Tja, það veit enginn nema almættið.