Saturday, January 08, 2005

í gær var ég að dunda mér við að sjóða saman atvinnuumsóknir fyrir sumarið. Er tildæmis að hugsa um að sækja um sem aðstoðarmaður dómara sem er staðsettur hérna rétt hjá. Þessvegna fór ég í gær í dómshúsið að skoða mig um. Villtist ég inn í einn réttarsalin þar sem réttarhöld voru að byrja. Ég settist aftast, í horn, og lét lítið sem ekkert fyrir mér fara. Réttarhöldin byrjuðu klukkan 2 og var lokið klukkan ellefu mínútur yfir tvö. Tekin voru fyrir 8 mál. Svona fór þetta fram.
All rise.
Please be seated.
Dómari: People v. A.
Ungur maður reis úr sæti og gekk að púlti.
Dómari: You owe us some money. When are you going to pay?
Sakborningur: Í get paid to morrow.
Dómari skrifar eitthvað hjá sér og muldrar um leið: Borgar $100 á innan við viku og gera samkomulag um restina. Lítur upp: Þú mátt fara. Næsti, people v. B.
Annar ungur maður stendur upp og gengur að púltinu.
Dómari: What about no marijuana don´t you understand?
Sakborningur yptir öxlum.
Við hlið dómarans stóð skilorðseftirlitskona sem sagði, hann er í skóla þessi.
Dómari: hvar ferðu í skóla?
Sakborningur: Michigan State University.
Dómari: Hvenær byrjar skólinn?
Sakborningur: Á mánudaginn klukkan 11.
Dómari: three days oakland county jail. Sestu í kassann.
Sakborningur fór og settist í kviðdómara kassann. Þar sat lögreglumaður sem tók á móti.
Nákvæmlega sama sagan endurtók sig fyrir sakborninga C, D, og E. Allir voru dæmdir í þriggja daga fangelsi fyrir að reikja hass í skilorðinu, svo þeir gætu mætt í skólan á mánudaginn.
Svo voru fjórir sem ekki mættu. Þeir voru allir dæmdir í $1000 sekt og gefin var út handtökuskipun.
Þannig var það, og ég taldi mig nokkuð heppinn að sleppa þarna út frjáls maður.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org