Monday, January 03, 2005

Jæja, þá erum við komin aftur heim. Fríið var ágætt. Vorum í Toledo þangað sem einhverjir þeir íslendingar sem hingað hafa vilst komu einmitt. Vorum á þokkalegu hóteli sem var reyndar mjög notalegt, nema hvað á gamlárskvöld leigði sér allskona lýður herbergi og til að halda þar partý og skemma fyrir hinum. Þannig voru hreingerningarkerlingarnar alveg yfir sig hissa daginn eftir því herbergin voru flest skilin eftir í þvílíku ástandi að greyið kerlingarnar voru langt fram á kv0ld að taka til eftir þennan lýð. Fórum líka og kíktum á íbúð sem var til sölu, en það kemur alveg til greina að við flytjum þarna til Toledo þegar náminu líkur. Hægt er að skoða teikningar af þessum íbúðum hér: www.bartleylofts.com. Í dag hef ég ýmislegt að gera, þarf að versla í matinn- ég hef nefninlega tekið að mér að elda þessa vikuna vegna þess að ég er enn í fríi. Er að vinna í matseðlinum, í dag ætla ég að vera með ofnbakaða svínalund, sennilega í rauðvínssósu, ef ég finn einhverja uppskrift sem ekki hefur of mikið kolvetni, og með brænum baunum (green beans). Á þriðjudag er boðið uppá hörpudisk sennilega með einhverskonar ostasósu, og asparagus. Miðvikudag, kjöthleifur með asparagus eða broccoli. Föstudaginn verður svo fiskur sem kallast orange roughy, heldur bragðmildur, steiktur upp úr smjöri, og borinn fram með sítrónu og grænum baunum. Þarf enn að finna út hvað skal hafa hina dagana.
Næst þarf ég að skila háþróaða vídeótækinu sem við gáfum gamla í jólagjöf, ætlum að kaupa slíkt í staðinn beint frá gervihnattafyrirtækinu, á að koma hingað í dag maður að setja þetta saman, á milli 1 og 5, þarf þessvegna að vera kominn aftur heim þá úr túrnum.
Loks þarf ég að skrifa og senda út eins og tvær atvinnuumsóknir fyrir sumarið. Ein skal send til Alaska og hin til Toledo.
Og jú, þarf víst líka að brjóta saman þvott og byrja að taka niður jólaskrautið. Og þá rennur upp fyrir mér að ég má víst lítið vera að svona dundi!


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org