Thursday, March 24, 2005
af ruv.is
23.03.2005 18:22
Deild 12 sigraði í sveitakeppni geðdeilda
Deild 12 á Kleppi sigraði í sveitakeppni geðdeilda, sem Hrókurinn efndi til á mánudaginn. Þar kepptu lið frá fjórum geðdeildum Landsspítalans og voru þrír keppendur í hverju liði. Á mótinu var keppt um Hróksbikarinn frá Árna Höskuldssyni gullsmið og vann Deild 12 bikarinn til eignar.
Þá gaf JPV útgáfa verðlaun og allir keppendur fengu merki Hróksins. Stefnt er að því að skákkeppni geðdeildanna verði árlegur viðburður.
Skákmótið fór fram við bestu aðstæður í samkomusalnum á Kleppi. Mótið var skipulagt í sameiningu af Hróknum og Vin, athvarfi Rauða krossins fyrir geðfatlaða, en þar hefur Hrókurinn séð um vikulegar æfingar í bráðum 2 ár.
Alls tóku hátt í 20 skákmenn þátt í sveitakeppni geðdeildanna 2005, bæði sjúklingar og starfsmenn. Mótið var hið skemmtilegasta og komu fram eindregnar óskir um að komið yrði á reglulegu skákstarfi á Kleppi.