Friday, March 11, 2005
Í gær fór ég í dálitla pílagrímsför. Ævintýrið hófst við afgreiðsluborð í lagabókasafni lagaháskólans við Michigan háskóla, hvar ég er nemandi. Þar fyllti ég út mikið eyðublað, hvar kom fram hvað ég hét, hvaða bók ég vildi skoða, og hversvegna ég þyrfti bókina. Næst var upplýsingunum slegið inn í tölvu og mér réttur séstakur passi svo sjá mætti að ég var með tilskilin leyfi til að fara inn í hið forboðna skrýni lagabókasafnsins, nefninlega, þar sem bækurnar eru geymdar. Lá leið mín upp á næstu hæð fyrir ofan, og svo inn í næstu byggingu, en neðanjarðargöng tengja byggingarnar tvær. Þar var gömul og lúin lyfta. Hana tók ég upp á fimmtu hæð og var talsvert hissa að sleppa lifandi úr þeirri prísund. Fimmta hæðin er eintómir dimmir afkimar, rykfallnir, hér og hvar má heyra raddir sem berast úr kontórum lægst settu starfsmanna skólans. Ég fetaði mig áfram í rökkrinu, leitandi að FL8 I3.9, gekk hálf erfiðlega, enn fannst þó loksins. En þar var ekkert ljós, leitaði, og fann rofa, og viti menn ljós varð. Við blasti innbundnir árgangar stjórnartíðinda frá upphafi til 2002, og líka innbundnir hæstaréttardómar til svipaðs tíma. Ýmislegt annað var líka til, íslendingasögurnar, bæði á íslensku og ensku, ýmis rit um þær, aðarar fræðibækur um Ísland, þar á meðal Lögfræðihandbókin, mig minnir að sú bók hafi einhverju sinni verið til á Skeljagrandanum, öllum til mikilla leiðinda, og lítils gangs. Þá voru líka til tvær útgáfur af Stjórnskipun Íslands eftir Ólaf Jóhannesson, og einhverjar aðrar skræður eftir sama höfund. Ég tók seinni útgáfu Ólafs á leigu, og mun kannski dunda mér við að lesa þetta í rólegheitunum eftir nennu.
Fátt annað gerðist þennan dag, nema hvað það snjóaði!
Fátt annað gerðist þennan dag, nema hvað það snjóaði!