Thursday, June 09, 2005

Í dag á víst aftur að vera heitt, klukkan níu er þegar 23°C, verður sennilega 35°C seinna í dag. Verstur er samt helv. rakinn, hann drepur. Í dag mun ég skunda til Ann Arbor hvar ég mun hitta Pórfessorinn sem ég er að vinna fyrir. Þarf að vita hvað ég á að bauka það sem eftir lifir vikunni. Á morgun ætlum við Jennifer að skreppa uppeftir til tengdamömmu þar sem ég mun sennilega spila golf við karlinn. Verst er að helv. kallinn er nokkuð góður, hann er víst meðlimur í golfklúbbi og spilar á hverjum degi. Ekki veit ég hvernig hann nennir því, en svona er nú það.
Seinna í dag liggur leið mín út á flugvöll. Vinur minn nokkur tyrneskur flutti um daginn heim til Tryklands. Ekki fór betur en svo að hann gleymdi hér einum tólf pappakössum. Því þarf ég að ruslast með þessa kassa út á flugvöll hvaðan þeir fara í Miklagarð.
Í gær var ég aftur að vinna hjá páfanum, það gekk vel fyrir utan hvað að engin er loftkælinginn. Að vísu þá eru loftkælingargræjurnar á staðnum, en því miður þá þora páfans menn ekki að setja þær í gluugana að ótta við að glæpahyskið í Detroit steli græjunum. Að lokum var ég svo yfirkominn af hita að ég reif páfans flugnanet úr glugganum og skellti loftkælingunni í gluggan. Að degi loknum tók ég svo bara tækið inn og lokaði glugganum. Problem solved, á ég sennilega inni eilífa vist í paradís eftir þetta.
Fyrir nokkru sendi frændi minn Ásgrímur mér langa og skemmtilega sögu sem við skrifuðum saman fyrir allmörgum árum. Hann fær heiðurslaun dagsins fyrir þá sendingu. Ekkert bólar hér enn á DVD myndum frá Ásgerði eða Reyni, já það er vissara fyrir þau að standa sig! Nú er ég með sambönd, þó óbein séu, við sjálfan páfagarð, og þaðan, tja, enn lengra.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org