Wednesday, June 01, 2005
Í Detroit er öllu stolið, hvort sem það er steini léttara eða þyngra. Tildæmis er holræsalokum stolið af götunum. Ekki er nú gaman að því. Sem betur fer keyrir maður svo hratt á hraðbrautinni að bíllinn stekkur yfir opin holræsagötin. Annars er umferðin þangað ömurleg, tekur mig uþb klukkutíma og kortér að keyra í vinnuna. Meira um það seinna. Nóg er að gera og lítill tími í spjall.