Sunday, July 31, 2005

Í gær fórum við að versla. Fyrst fórum við í Kringluna, þar keyptum við allskonar skyrtur og bindi. Í lok Ágúst fer ég nefninlega í allskona viðtöl í von um arðbæra sumarvinnu næsta sumar. Auk þess stoppuðum við í gleraugnaverslun og pöntuðum tíma í augnskoðun. Ég er ansi hræddur um að ég þurfi að fá mér glerauga vegna þess að ég er farinn að sjá dálítið illa fjarri mér.

Að því loknu fengum við okkur að éta á ágætis veitingastað í Kringlunni, ég fékk hamborgara og tortilla súpu, á meðan Jennifer fékk sér eins súpu og samloku.

Því næst stoppuðum við í bókabúð nokkurri og skoðuðum okkur um allnokkra stund. Keyptum meira að segja nokkrar bækur- Leiðbeiningarbók um blandaða drykki, tímarit um Detroit, metreiðslubók um lá-kolvetnismat, To the Lighthouse eftir Virginíu Woolf. Þar fengum við okkur auk þess kaffi.

Loks stoppuðum við í Walmart áður en við héldum heim, og keyptum allskonar drasl til heimilisins.

Tja, það er aldrei að vita hvað dagurinn í dag hefur að geyma.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org