Monday, November 28, 2005

Í dag er sautjángráðu hiti á °C. Djöfullinn hafi það. Ég áttaði mig ekki á hitanum í morgun og fór í peysu. Þessvegna er ég að drepast úr hita akkúrat núna. Skömm er að. Annars er þakkargjörðin búin. Gaman var að því. Máltíðin tókst með eindæmum vel. Svo mikið var af kalkún að við átum kalkúnbökur daginn eftir of kalkúnsamlokur á þriðja degi- auk þess voru allir gestir leistir út með kalkún. Ritgerði er að mestu búin, held ég hallist að titlinum sem Ásgrímur stakk uppá, en er ekki alveg með það á hreinu enn. Á bara eftir að lesa yfir og hreinskrifa. Það er nefninlega það!


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org