Wednesday, November 30, 2005

Í gærkvöldi keyrðum við heim úr skóla og vinnu. Dálítil rigning var úti, og mikið myrkur. Heim keyrum við eftir fremur fáförnum sveitavegi. Á þeim vegi er hámarkshraði eitthvað í kringum 100km/klst og keyrum við yfirleitt aðeins hraðar en það. V-6 sjáiði til! Semsagt, vorum að keyra eftir þessum dimma fámenna vegi er alltí einu sjáumvið hvar maður stendur í við vegakantinn. Ekki vissum við af þessum mann fyrr en við vorum alveg kominn að honum, slíkur var hraðinn, dimman, og þannig lág líka vegurinn. Dauð brá bílstjóranum, enda ekki gaman að sjá manneskju birtast örstutt frá bíl sem ekið er á ofsahraða nokkurnveginn í áttina. Reyndar sá aðeins annað okkar manninn, það var bílstjórinn Jennifer. Sjálfur sá ég ekki þennan mann. Varð ég samt var við viðbrögðin og var mér sagt að þarna hefði staðið maður við veginn, jafnvel í stórhætti. Honum var svo líst fyrir mér síðar. Maður þess, sem stóð við veginn stóð þar teinréttur, með hendur við hliðar, stóð hægrameginn á veginum og horfði í áttina til okkar. Maður þessi var í appelsínugulum samfesting og með appelsínugula hettu.
Samt sem áður létum við þetta ekki á okkur fá og héldum áfram för okkar heim. Ekki höfðum við þó keyrt nema annan kílómetra, eða tvo er við sjáum allt í einu aðra manneskju standandi við veginn. Í sömu stellingu og hinn. Hér var hinsvegar um kvendýr að ræða, sennilega af asískum uppruna. Sú stóð við veginn, næstumþví á veginum, í bláum samfestingi og með bláa hettu. Þessa síðari manneskju sá ég sjálfur og get þessvegna borið vitni. Enn og aftur héldum við áfram för okkar eins og lítið hefði í skorið og komumst heil og höldnu heim.
Í morgun keyrðum við svo sömu leið til baka, í skóla og vinnu. Hvergi sáust þó nokkur merki um hina undarlegu vegbúa er við sáum svo skyndilega rétt kvöldið áður.
Undarlegt!


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org