Wednesday, November 23, 2005

Á morgun er hér þakkargjörðardagur. Þá verður sko étið mikið. Þannig gengur dagurinn fyrir sig: Vaknar fólk uppúr tíu og fær sér morgunmat. Um 11-leitið er boðið uppá hádegissnakk. Um klukkan eitt er svo hádegisverður. Klukkan tvö er svo miðdegissnakk (sem er venjulega svakalega gott). Klukkan fjögur byrjar svo amerískur fótboltaleikur sem allir verða að horfa á. Með leiknum er náttúrulega boðið uppá ýmiskonar snakk. Jú, eftir leikinn er svo borðaður kallkúnn, með fyllingu, stöppuðum kartöflum, sósu, brauði osfrv. Eftir kalkúninn er svo boðið uppá þrjár gerðir af eftirrétt. Þetta árið erum við með (eða réttara sagt Jennifer er með) graskerböku, ostaköku, og ís með sérpöntuðu kjarnasúkkulaði frá Kólimbíu. Þá er farið að sofa. Markmiðið er að fara ekki út úr húsi allan heila daginn.
Verst er að Haukur þarf að sóa hluta dagsins í að skrifa æsispennandi ritgerð um sjálfstæði stjórnarmanna. Já, hvað á hún að heita? Hvað með: Towards a Universal Definition of Director Independence? eða Director Independece: a Survey of Various Legal Requirements? eða þá The Independent Director in Corporate Law: Who´s That?
Uppástungur vel þegnar.
Í dag er helvíti kalt, snjóar og verður sennilega ekki aftur snúið fyrr en í Apríl eða Maí.