Friday, March 17, 2006


Tvo morgna í viku tek ég strætó í skólann. Þar hitti ég stundum fuglafræðing gamlan sem starfar eitthvað við háskólann. Hann segir mér að í þessum klukkuturni hafi hreiðrað um sig arnapar sem mun vera í útrýmingarhættu. Af því tilefni hefur háskólinn hætt að hringja bjöllunum. Ég fór þarna framhjá í gær, en enga sá ég ernina.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org