Monday, March 15, 2004

Í dag tók ég frí í vinnunni svo ég gæti skutlað Holmes út á flugvöll. Sá flýgur til Arizona hvar hann mun dvelja í viku á einhverjum golfvelli. Annars hefur ekki margt gerst síðan sást til mín síðast. Í gær fór ég í klippingu aftur langleið, verst var að fíflið gleymdi fyrirmælum síðan síðast og klippti hárið þessvegna of stutt. Eitt tækifæri enn er allt sem gefst því þetta er þónokkur leið að fara til þess eins að klippa sig. Hatturinn er semsagt í brúkun aftur og ég get aðeins vonað að þetta vaxi eitthvað áður en við mætum í fermingu Hartmanns nokkurs litla.
Á laugardagin fórum við svo í bíó og sáum þar píslargöngu Krists. Myndin var þokkaleg, og kannski þess virði að sjá, þó að sagan sé kunnuleg og raunar fátt sem kemur þar á óvart. Varla held ég samt að ég muni nenna að horfa á þessa mynd aftur, nema þá ef ég skyldi þjást af agalegu minnisleysi, sjö, níu, þrettán. Sama dag leigði ég líka Intolerable Cruelty eftir Cohen bræðurna og held að þetta sé sísta mynd þeirra til þessa, en var samt þokkaleg þó varla myndi ég endast yfir henni í annað sinn.
Í dag þarf ég að fylla út sviga. Hvern mars er haldið í bandaríkjunum körfuboltamót sem ég veit ekki hvað heitir. Þar keppa bestu háskólaliðin um Bandaríkjatitilin í háskólabolta. Þetta virkar eins og 32 liða úrslit gera almennt og dettur taplið í hverjum leik úr keppni. Hér tíðkast að spá fyrir um úrslit í hverjum leik og giska á hver stendur uppi sem sigurvegari. Spádómar þessir eru svo ritaðir á blað og ásamt einhverri peningaupphæð afhendar einhverjum strangheiðarlegum umsjónarmanni. Sigurvegarinn fær svo til baka allnokkurt fé. Þó þetta sé í sjálfusér ólöglegt þá er þetta agalega vinsælt hér um slóðir og tökum við allajafnan þátt. Hingað til hefur mér gengið mjög illa enda veit ég ekki neitt um þennan háskólabolta. Í ár ætla ég mér hinsvegar að rannsaka þetta vel og reyna að vera nærri toppnum. En við skulum sjá hvað setur, getur tölfræði gert betur en innsæji?


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org