Sunday, March 07, 2004

Í gær skruppum við í bíó og sáum Starsky and Hutch. Þetta er alveg þokkaleg mynd sem hægt er að hafa gaman að. Að öðru leiti var gærdagurinn ansi rólegur. Við fórum í tvær búðir og keyptum sólgleraugu, því veðrið er búið að vera ágætt. Á föstudaginn var 18gráðu hiti en talsvert rok sem þó myndi ekki þykja frásagnarvert á Íslandi. Í Detroit er afturámóti öll almenningskerfi í slíku drasli að þúsundir manna urðu rafmagnslausar þegar rafmagnstaurar brotnuðu í golunni. Einnig fauk veggur af gömlu yfirgefnu verksmiðjuhúsnæði. Ég varð hissa yfir þessum fréttum því mér sýndist rokið ekki vera það slæmt, týpískur dagur í Vesturbænum. Það held ég nú.
Annað er ekki að frétta, nema hvað í gær rak ég mig á uppskrift sem er jafnvel betri en Kjúklingur en Papillotte. Var að hugsa um að birta uppskriftina hér en viðbrögðin voru ansi dauf við síðustu uppskriftabirtingu, þannig að ég þarf að hugsa málið. Ég óttast ekkert meira en að áhorfendunum fækki vegna leiðinda á uppskriftum. Stumpurinn er ætlaður til þess eins að auka vinsældir Hauks Guðmundssonar og fylgi. Það vita náttúrulega allir.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org