Thursday, March 04, 2004

Kjúklingur en Papillotte 

Talsverð eftirspurn hefur verið eftir þessari uppskrift og hún fylgir þessvegna hér. Er fyrir fjóra.

4 beinlausar og skinnlausar kjúklingabringur (um eitt pund eða 454 gr)
klípa af salti
klípa af ferskmulnum svörtum pipar
2 graslauksstrá, skorin í smábita (chopped)
1 meðalstór gulrót sneiðuð á ská
1 lítið zuccini (kúrbítur) skorið fyrst til helminga eftir endilöngu og svo í sneiðar 3,8 cm á breidd.
[Ef kúrbítur er ekki til á Íslandi myndi ég nota einn grænan eða rauðaj belgpipar (paprika?) skorinn í strimla]
1 teskeið þurkað tarragon (ég hef notað annaðhvort Basil eða oregano með góðum árangri)
1/2 tsk rifinn appelsínuhúð (orange zest)

Hitið ofninn í 218 gráður celsius. Mælið fjóra 60 cm strimla af álpappír og brjótið hvern til helminga svo úr verði ferningur, 30 cm á hverrja hlið. Kryddið kjúklingabringur með smá salt og pipar. Setjið kjúklingabringu rétt fyrir neðan miðju á hverjum álferning.
Í litla skál blandið graslauk, gulrót, zuccini, tarragon, og appelsínuhúð. Setjið svo fjórðung af blöndunni ofan á hverrja kjúklingabringu.
Brjótið svo álpappírinn saman við miðju, yfir kjúklinginn of kremjið allar hliðar vel að bringunni. Munið að grænmetið skal snúa upp og vera ofan á kjúklingnum.
Þetta skal svo baka í 20 mínútur á ofnplötu.
Opnið svo pakkana með því að skera lítið X að ofan og rífa álpappírinn utan af.

Verði ykkur að góðu.



This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org