Wednesday, March 10, 2004
Mér hafa borist ótal ábendingar um það sem betur má fara í sambandi við stumpinn. Þó er mér skorinn nokkuð snöggur stakkur að því leiti að ég hef undir höndum hvorki ummál né fyrir eða eftirmyndir. Auk þess þykir víst ósiður mikill hér í bandaríkjunum að spyrja fólk um þyngd og hef ég þessvegna sjálfur ekki hugmynd um slíkar tölur, nema fyrir sjálfan mig. Þar sem ég er Íslendingur, eins og flestir muna, þá er mér alveg sama þó umheimurinn viti hve mikið ég veg. Þessvegna hef ég ákveðið að koma til móts við lesendur og hef komið þessum upplýsingum fyrir á línuriti hvar auðvelt er að fylgjast með vikulegri þyngd Hauks Guðmundssonar í pundum. Það er hægt að kynnast þessu nánar með því að smella á hlekkinn "línurit" hér til hliðar. Ritstjórn stumpsins þakkar Ásgrími þessa tillögu. Línuritið byrjar daginn sem kúrinn byrjaði og sýnir svo vikulegar breytingar.
Annars er hér fátt að frétta. Ég og gamli, sem héðan í frá verður kallaður Holmes, af ástæðum sem kannski verður sagt fra síðar, fórum í dag og hittum John mág minn. Með honum keyrðum við á dekkjaverkstæði og keyptum dekk. Síðan fórum við heim til hans og skiptum um dekk á 84 Crown Victoria. Síðan keyrðum við í húsasmiðjuna og keyptum agalegar poltaklippur. Síðan klipptum við handbramsuvírinn undan bílnum. Loks keyrðum við bílnum að veitingastað hvar sambýliskona John´s hún Jena vinnur. Þar borðuðum við hádegismat og drukkum vatn. Loks var haldið á bremsuverkstæði og sóttur þar Pontiac Grand Am 97. Þar skildu leiðir og við Holmes héldum til ömmu Rodriguez og ég lagaði internetið hennar á meðan Holmes fór og keypti einhverjar matvörur. Loks héldum við heim á leið.
Þegar heim var komið fékk ég póst þess efnis að lánið sem Bush óvinur minn vill láta mig fá er ekki nóg til að borga skólagjöldin í lögfræðinni. Lítur nú einna helst út fyrir að ég þurfi að leita á náðir einhverrja lánadrottna, og held ég sveim mér þá að það sé skárra að skulda þeim en helvítis skrattakollinum hinum. Annars á þetta allt eftir að koma í ljós.