Monday, May 24, 2004
Í dag var vigtað og léttumst við Jennifer bæði um 0,9 kg síðan fyrir viku. Ekki gleyma að skoða línuritið.
Fórum í bíó á laugardaginn og sáum Troy þar. Ekki mæli ég með þessari mynd sérstaklega. Í gær vorum við svo bara heima og slöppuðum af nema hvað við skruppum út í búð og keyptum mat fyrir vikuna.
Annars var ég mikið að lesa um helgina og kláraði loksins agalega langa bók um fyrsta bandaríska nóbelsverðlaunahafann í bókmenntum. Spurning dagsins: Hvað hét hann?
Annars er ég með nokkuð háan stafla af bókum sem ég vil gjarnan klára áður en skólinn byrjar og held ég að ég vindi mer í það. Kannski maður taki sér pásu frá lestrinumn á eftir og hlusti á eldhúsdagsumræður. Annars hef ég ekki verið mjög heppinn með svona internetútvarp nýlega, skemmst er þess að minnast að KR tapaði 3-1 einmitt í slíkri útsendingu í síðustu viku. En við sjáum til.