Friday, May 28, 2004

Fór á vef Hagstofu Íslands áðan í þeim erindagjörðum að skrá sjálfan mig sem búsettann erlendis. Í leiðinni athugaði hverjir í ættinni bera sjaldgjæfustu eiginnöfnin. Engum kemur náttúrulega á óvart að sigurvegarinn er Björn Virgill sem er eini Íslendingurinn sem heitir Virgill. Lilja Pálína mun svo eina manneskjan sem heitir það. Í þriðja sæti eru Hartmann Kristinn, Ásgerður Helga, og Ágúst Viðar en aðeins eru tveir Íslendingar sem bera þau nöfn saman. Geta má þess að á þjóðskrá eru 4 sem bera einnefnið Jack. Í fimmta sæti eru þau jöfn, Hjalti Snær (ég man ekki millinafn Hönnu systur hans en minnir að það nafn sé ekki algengt) og Thelma líf, því ekki bera nema 7 þau tvínefni. Og svo mætti raunar lengi telja, en nenni ég því ekki lengur.
Komst að því líka að mig vantar umboðsmann með lögheimil á Íslandi. Hefur einhver áhuga á þeirri heiðursstöðu? Þ.e. Umboðsmaður Hauks Guðmundssonar á Íslandi.
Í kvöld held ég að Detroit Pistons séu að keppa í undanúrslitum NBA deildarinnar og getur vel verið að maður fylgist eitthvað með því annars er ég ekki viss. Er að reyna að klára Njálssögu fyrir morgundaginn því ég vil lesa eitthvað annað á morgun.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org