Wednesday, May 19, 2004
Hér hefur verið yfir því kvartað að ég skrifi hér lítið. Það er rétt, þó kannski fari eftir því við hvað er miðað. En fyrir skorti á skrifum liggja góðar ástæður eins og hér verður nú rakið.
Á fimmtudaginn skrifaði hér síðast, en síðan hef ég verið ansi upptekinn. Á föstudaginn var ég í vinnu allan daginn. Laugardaginn fórum við svo í heimsók til tengdarmömmu. Þar lenti Jennifer í landbúnaðarstörfum á meðan ég spilaði golf. Golfið gekk mjög vel og var skorið 63, 61, 58 fyrir hverjar níu holur, sem er mjög gott fyrir mig, þó kannski ekki fyrir aðra. Við komum svo heim seint á sunnudaginn. Á mánudaginn var ég svo í vinnu allan daginn. Þriðjudagur var minn síðasti vinnudagur. Ég dundaði mér í vinnunni til hádegis, keypti svo nokkrar pizzur handa fólkinu í minni deild og fór svo klukkan hálf tvö að spila pool og skák með Tyrkneskum kunningja mínum. Loks sótti ég Jennifer í vinnuna og við fórum heim. Í matinn grillaði ég nautalundir sem voru frábærar. Þannig hafði ég ekki tíma til að sinna blogginu.
Á mánudaginn var vigtað. Haukur léttist um 1,27 kg á meðan Jennifer léttist hvorki né þyngdist. Ekki gleyma að skoða línuritið hér til hægri.
Annars er fínt að vera loks orðinn atvinnulaus og verð ég það þar til skólinn byrjar fyrsta júní.
Er í augnablikinu er ég að hlusta á umræður á alþingi um fjölmiðlafrumvarpið. Skelfing þykir mér þetta mál öfugsnúið og skrýtið.