Friday, May 21, 2004
Nú taka glöggir lesendur Stumpsins eftir því að horfinn er linkurinn á heimasíðuna hans Hartmanns. Harry litli var svo latur að skrifa. Líka er horfin linkurinn á heimasíðu Meijer, því þar vinn ég ekki lengur, sælla minninga. Bæst hefur við linkur á síðu Hólmfríðar Hartmannsdóttur sem ég komst yfir fyrir algera rælni. Agalegt er að lesa orðbragðið á ungviðinu í dag!
Í gær fór ég eins og kom hér fram á byggðarsafnið hérna. Þar var hinsvegar verið að byggja sólpall svo safnið var lokað. Það lítur út fyrir að við spilum golf á eftir, því hætt er að rigna, en þó lítur út fyrir að meira regn liggji í loftinu. Í nótt voru víst agalegar rigningar og mynduðust 1.5 metra djúpir pollar í útborgum Detroit. Hérna lítur allt hinsvegar vel út, og er rigningin bara góð fyrir plönturnar.
Loks óskar Stumpurinn verkalýðsforingjanum til hamingju með glæsilega kosningu!