Saturday, May 08, 2004
Pantaði í gær laptop. Mér skilst nefninlega að svoleiðis sé nauðsynlegt þarna í skólanum. Útgjöldin í sambandi við þennan blessaða skóla virðast ekki ætla að taka nokkurn enda. Spilaði líka golf í gær og gekk það hrikalega illa, ég held að ég væri meira að segja í vandræðum með að vinna Sigga og Árna með svoleiðis spilamennsku. Úrslitin birtast ekki á línuritinu hér til hægri vegna þess að þetta gerðist á öðrum golfvelli og er þessvegna ekki sambærilegt (sem betur fer). Í dag á ég líka að fara að spila golf með Holmes, bræðum hans tveimur, og bróðursyni. En það lítur út fyrir rigningu þannig að kannski verður ekkert af þessu. En við sjáum nú bara til með það.
Loks skal nefna að ég bætti hér inn á síðuna hlekk sem ég rakst á í gær. Þetta er bloggið hennar Guðlaugar og má skoða það með því að smella á hlekkinn Kvari hér til hægri.
Loks skal nefna að ég bætti hér inn á síðuna hlekk sem ég rakst á í gær. Þetta er bloggið hennar Guðlaugar og má skoða það með því að smella á hlekkinn Kvari hér til hægri.


