Monday, August 02, 2004
Í dag á víst að vera helvíti heitt hérna í Bandaríkjunum, þessvegna er best að halda sig innandyra. Hef verið í mikilli vinnu undanfarna daga að bauka í ritgerð sem ég á að skila í dag, enn er verið að tala um hraðbankagjöldin og held ég að þetta hljóti að teljast útrætt mál.
Annars er voðalega lítið að gerast. Hér var í síðustu viku árleg listahátíð en þá fylkist hingað lið allstaðar af úr heiminum og rembist við að selja misléleg "listaverk" sem eiga það helst sameiginlegt að vera öll voðalega sviðuð. Þessi flóamarkaður endist í einhverja fimm daga og er alveg ótrúlegt hvað mikið af fólki mætir, bæði til að selja og kaupa, eða kannski að skoða. Mest gaman er kannski af góðgerðarhlutanum en þar er lið með bása sem vill koma einhverjum ákveðnum málefnum á framfæri. Þar var Kerry með bás, og sennilega fíflið líka. Þar má líka sjá hina ýmsu trúflokka, umhverfisverndarsamtök, og árlegan báse áhugamanna um nektarnýlendur. Undanfarin ár hefur liðið setið þarna á sundskýlunum einum fata, en í ár er ég labbaði framhjá þá var þar bara einhver allklædur vitleisingur. Já, ekki er öll vitleysan eins.
Ef einhvern þyrstir í menningu, endilega skoðið þá nýjustu söguna hans Ásgríms sem birtist í nýjustu útgáfu bewilderingstories.com