Friday, August 06, 2004
Horfði á einkennilega bíómynd í gærkveldi. Sú hét Bark! og var um mann sem vaknaði við það að konan hans hélt að hún væri hundur. Þannig gelti kerlingin um nætur og hélt því áfram. Þessi mynd minnti mig á mann sem ég heyrði einhverntíman talað um, sem hélt að hann væri kjúklingur. En þá datt mér eitt í hug. Hvað ef maðurinn sem hélt að hann væri kjúklingur, var í rauninni kjúklingur? Eru það þá ekki hinir sem eru ruglaðir í ríminu.
Nú hætta sennilega margir að lesa, halda að hér röflað um gamla hugmynd sem allir eru þreyttir á, nefninlega að kannski eru vitleysingarnir þeir einu með fullu viti. En nei, hér er enn verið að tala um kannski enn eldri spurningu, nefninlega, hvað er kjúklingur, sem hefur birst hér áður. Þá er það spurning, er verandi kjúklingur eða ekki spurning um vitund, eða er það bara spurning um veru? Ef það er spurning um vitund, getur þá ekki vel verið að maðurinn sem heldur að hann sé kjúklingur, sé í rauninni kjúklingur? En ef það er spurning um veru, getur þá ekki staðist að maðurinn sem heldur að hann sé ekki kjúklingur sé í rauninni kjúklingur?
Ég á von á að af þessum vangaveltum spretti miklar umræður, sem hafa verið með minna móti hér uppá síðkastið.
Lélegasta vefsíða dagsins er vísir.is, en þar sá ég þessa setningu í morgun: "Hvaða bráðaofnæmi eru talið að A- og D-vítamíndropar sem kallaðir hafa verið af markað hafa valdið?"