Wednesday, August 04, 2004

Hvar er Ása? 

Nú skal kynna nýjan dagskrárlið hér á Stumpinum. Sá heitir "lélegasta vefsíðan." Fyrsti vinningshafinn er salaskoli.is. Sú vefsíða er sérlega léleg vegna þess að þar birtast aldrei myndir af Ásgerði. Ásgerður heldur því samt fram að hún vinni við skólann. Það er einmitt það.

Í tengdum fréttum er það helst að letihaugarnir á Íslandi hafa enn ekki sent hingað myndir sem mér var lofað fyrir ári og öld. Skammastið ykkar!!

Þá er komið að nýjum dagskrárlið, sem er líka tengdur, hér sjáiði hvað heimurinn er þéttvofinn! Þar sem ég er svo agalega myndsveltur, þá leita ég stundum á netinu af myndum. Og á lélegustu vefsíðunni er mikið af myndum. Lokst tókst mér að koma auga á þessa umræddu Ásgerði. Þannig varð semsagt þessi dagskrárliður til, sem heitir "Hvar er Ása?"
Endilega kíkið á þessar myndir, og athugið hvort þið komið auga á Ásu! Nefna má að vegleg verðlaun eru ekki í boði.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org