Monday, August 09, 2004
Jú, það fór eins og mig grunaði. Ásgrímur leysti gátuna strax, en samt upphófust talsverðar umræður. Þá er næsta spurning, sem er ekki jafn heimspekileg, en ætti að höfða til stærri hóps. Er Ísland vondur staður fyrir grænmetisætur? Hér situr í sexsæta sjarlægð manneskja sem stundaði nám á Íslandi í eitt ár, mér skylst að hún hafi verið að stúdera kríur. Ég náttúrulega spurði hvernig henni hafi fundist vistin. Jú, ekki slæm var svarið, en vont var að finna eitthvað að éta. Jú, þessi manneskja er einmitt grænmetisæta. Auk þess sagði hún mér að Íslendingar væru ekki þolinmóðir gangvart fólki sem ekki kann Íslensku, en reynir samt að læra. Frekar vilja Íslendingar æfa sína eigin ensku. Ljótt er að heyra og þið ættuð að skammast ykkar.
Í dag byrjuðum við aftur á fyrsta stigi megrunarinnar. Ekki er það vegna þess að við erum að þyngjast, heldur höfum við tekið eftir því að við höfum verið í auknu mæli að éta ís og þessháttar. Sem er í sjálfu sér í lagi, svo lengi sem í góðu hófi er. Þar afleiðandi hefur hægt á þyndgarmissinum. Línuritið, sem ég þarf endilega að endurnýja hefur þessvegna flatst út. Síðan kúrinn hófst hefur Haukur lést úr 258 pundum í 212 pund. Held að 200 slétt sé best. Man ekki í augnablikinu hvað hinir hafa lést, en það er eitthvað minna.
Heiðurverðlaun dagsins fær Reynir, sem sendi mér nokkrar Íslenskar DVD myndir. Til hamingju með það!