Wednesday, August 11, 2004

Þúsundasti Gesturinn 

Ég veit ekki hver var þúsundasti gesturinn. Veit bara að hann/hún var í Vestmannaeyjum, níunda Ágúst klukkan 1002 til 1003. Sá gestur var í tölvu sem keyrir Internet Explorer 6.0. Gesturinn fann síðuna með því að fara á google.com og leita þar að "stumpurinn"; hver ertu ó þú þúsundasti gestur?

Í gær, dag, og fyrradag var miklu heitara á Íslandi heldur en í Ann Arbor. Gott á ykkur, loksins er það ekki ég sem er að drepast úr hita. En hvað um það?

Nú fer að líða að prófum hér, þannig að þið skulið ekki láta ykkur bregða þó ég hverfi skyndilega af yfirborði jarðarinnar.

Það var engin saga eftir Ásgrím í nýjasta hefti bewilderingstories.com. Ertu nokkuð blokkaður drengur?


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org