Thursday, October 28, 2004
Kosningar
Jæja, þá eru hér kosningar á þriðjudaginn. Kannski er það ekki frásögum færandi, nema hvað að þá kemur í ljós hvort helvítis vitleysan heldur áfram, eða ekki. Hvað geta Íslendingar gert í þessum málum? Ekkert! Nema kannski að Haukur fari og fylgist með hvort helv. fíflin séu að reyna að banna fólki að kjósa. Já, það er ekki fallegt að segja frá því, en nýjustu fréttir úr vöggu lýðveldisins eru þær að forsetinn og hans hyski standa í stórræðum við að reyna að banna fólki að kjósa. Þessvegna bíðst laganemum tækifæri að ganga í gengum námskeið í að koma í veg fyrir svoleiðis vitleysu. En þá birtast vandamál. Þannig er mál með vexti að hér í USA er kosið á þriðjudögum, en þá er einmitt líka skóli. Hvernig fer ég að því? Annaðhvort sleppi ég skólanum eða ég sleppi lýðræðinu. Ég þarf að hugsa málið vel og vandlega, enda hef ég framyfir helgi til að ákveða mig.
Annars er það að frétta að Ásgerður nokkur verfallskennari sendi mér mynd af húsinu sem hún ætlar að byggja þegar hún er búin að fá launahækkunina góðu. Þetta sýnist mér vera rosalega flott hús, sérlega fjölskylduvænt, sem kemur sér vel einmitt því þau eru með fjölskyldu.
Aðrir hafa verið latir að senda mér myndir. Þið ættuð að skammast ykkar. Undantekningin eru þau Guðni og Kristín sem sendu mér nýlega nokkrar myndir af þjóðhátíð í Eyjum. Þakkir fá þau fyrir það.
Hér er annars mikið að gera, ég stend í stórræðum við að skrifa ritgerð langa um stelpu sem lenti í kynferðislegri áreitni. Auðvitað förum við í mál við ýmsa aðila vegna þess.