Friday, December 03, 2004

Illugi: færðu prósentur? 

Dýrkeyptur matvælaþjófnaður í Hagkaup

Dýr varð Hafliði allur manni sem hnuplaði matvörum fyrir rúmar 1.500 krónur í Hagkaup því hann hefur verið dæmdur til að borga 10.000 krónur í sekt og 90.000 í málsvarnarlaun auk annars sakarkostnaðar.

Þjófnaðurinn átti sér stað í Kringlunni í ágúst en öryggisvörður fylgdist með manninum, sem er á fertugsaldri, á eftirlitsskjám. Kannaðist hann við manninn er hann kom inn húsið þar sem hann var grunaður um þjófnað úr sömu verslun fyrr í sama mánuði en ekki náðst.

Maðurinn krafist sýknu en dómara þóttu viðbárur hans og skýringar fráleitar en við rannsókn málsins og rekstur var fram lagður geisladiskur með upptökum úr öryggismyndavélakerfi sem þóttu sýna fram á þjófnaðinn.


This page is powered by Blogger. Isn't yours? Weblog Commenting by HaloScan.com Get Firefox!  Use OpenOffice.org