Thursday, December 23, 2004
Veðurguðirnir voru mér hagstæðir í dag, og á ég varla slíku að venjast. Þannig voru mál vaxin að ég fór í gær og ætlaði að kaupa inniskó handa Jennifer og ýmislegt annað. Vildi þó ekki betur til en svo að þegar kom að því að borga þá hafði myndast svo agaleg röð við kassana að ekki sá fyrir endann á. Ekki lét ég bjóða mér það, heldur fór heim allslaus og kauplaus, en hét þess um leið að vakna snemma næsta morgun. Svo vildi svo vel til að í nótt var hér mikil snjókoma og stormur. Vegna veðurs vor kanarnir feimnir við að versla í dag og ég var þessvegna aleinn í búðunum!! Já, hver segir að það borgi sig ekki að bíða fram á seinustu stundu?


