Thursday, May 05, 2005
Hlé
Jæja, nú er byrjað fyrsta sumarið í langan tíma sem ég hef ekki verið í skóla. Var að klára ansi merkilega ritgerð. Hana geta áhugasamir lesið hér. Er reyndar ekki búinn alveg fyrr en seinna í dag, þegar ég skila þessari ritgerð á sinn stað.
Byrja í vinnunni á þriðjudaginn hjá Benedict vini mínum sextánda. Hann er nefninlega með útibú í Detroit hvar rekin er lögfræðiþjónusta fyrir fátæka innflytjendur. Þar verð ég í vinnu tvo daga í viku hvar ég veiti bláfátækum útendingum ómetanlega lögfræðiaðstoð. Að launum hlýt ég svo nokkrar línur til viðbótar á mitt curium vitae og vonandi meðmælabréf frá mínu samstarfsfólki, að ógleymdri náttúrulega ævarandi eða eilífri sæluvist í paradís.
Í júní byrja ég svo í annari vinnu sem er við skólan minn. Þar verð ég við að leiðrétta ritgerðir nýrra laganema og aðstoða Prófessorinn við ýmis störf, við verðum tveir í þessu, ég og golffélagi minn hernandez. Svo getur líka vel verið að ég taki að mér smá rannsóknarstörf fyrir enskan Prófessor, mun vita meira um það seinna.
Annars er ég að tala við frænda minn Reyni á netinu, meira seinna!