Tuesday, October 18, 2005
Í dag er einn kennarinn veikur. Þessvegna gefst smá tími til skrifa. Hef verið voðalega upptekinn síðustu daga vegna þess að ég hef verið að leita mér að sumarvinnu. Þetta er agalega langt og leiðinlegt ferli, sem byrjaði seint í Ágúst, er haldin voru viðtöl hér í skólanum. Fyrstu vikunna fór ég í 28 viðtöl við hina og þessa. Af þessum 28, sögðu 20 mér að fara til andskotans, 7 báðu mig að koma í annað viðtal í höfuðstöðvar þeirra, frá einum blesa hef ég enn ekkert heyrt. Þannig að ekki var ég of vinsæll í þessum viðtölum. Þá þurfti ég að ferðast á hina og þessa staði. Fór tvisvar til Detroit, einu sinni til Minneapolis, tvisvar til Chicago og tvisvar til Philadelfíu. Tvisvar var fluginu út frestað um klukkutíma, tvisvar var fluginu heim seinkað um klukkutíma og einusinni var fluginu heim aflýst. Þá þurfti ég að leigja bíl og keyra heim. Meðan ég man, er ekki asnalegt að tala um leigubíl annarsvegar og bílaleigubíl hinsvegar? Ég sting upp á að orðið Taxi verði tökuorð í íslensku (er kannski orðið það að einhverju leiti nú þegar)og leigubíll sé notað yfir bíla sem teknir eru á leigu, bílstjóralausir. Af þessum sjö sem ég hitti í seinna skiptið, eftir heljarinnar ferðalög, hafa þrír sagt mér að fara til andskotans, þrír hafa boðið mér sumarvinnu, og frá einum hef ég ekkert heyrt. Já, ekki er það glæsilegt, af 28, aðeins þrír geta ímyndað sér að ráða Hauk í vinnu. Þannig að nú erum við að ákveða hvert við viljum flytja. Annaðhvort til Chicago eða Fíladelfíu. Endilega takið þátt í könnuninni hér að neðan.
Í síðasta viðtalinu, sem var í Fíladelfíu, og sem varð svo að tilboði talaði ég við merkilegan mann sem sagði mér stórfréttir. Jú, foreldrar hans ferðuðust til Íslands fyrir um tuttugu árum. Jú, höfðu mjög gaman af ferðinni. Þau ferðuðust þar um með lest í einar tvær vikur. Ja, ekki vildi ég játa á mig fáviskuna, og sagði því ekki neitt. Nema hvað, jú, Ísland er ágætis land, og gaman sennilega að koma þangað í heimsókn. Ja, amma segir satt- ekki er öll vitleysan eins.
Meðan ég man aftur. Um daginn fór ég inn á teljarann hér á síðunni og sá að einhver var að heimsækja þessa síðu af undarlegu bloggi sem ég hef ekki áður lesið. Viti menn, var ekki þar á ferðinni hann Ásgrímur frændi minn sjálfur, sem hefur haldið þessu ævintýri út í fleiri ár, án þess að ég væri nokkurs vísari. Hann er auk þess manna duglegastur að skrifa og kemst þessvegna efstur á blað á linkalistanum hér til hægri.
Síðast: Skólinn hérna hefur aldeilis tekið sig til í andlitinu og er búinn að bæta íslenska stafrófinu á tölvurnar hérna, á mjög aðgengilegan hátt. Húrra fyrir því. Slíkt verður þó varla til þess að maður skrifi hérna oftar. Enda eru áhorfin fremur slök, frænka mín Hólmfríður fær fleiri gesti á dag, en ég fæ á mánuði, samt skil ég varla nokkuð sem hún. Mikið er Eylenskan skringileg.